fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Sindri grillaði oddvita Viðreisnar í beinni á Stöð 2: „Þórdís, þú segir ekki neitt. Þetta er rosalega lítið“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 21. mars 2018 12:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sindri og Þórdís í gær. Mynd-Facebook hjá Gunnari Smára

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, mætti sigri hrósandi í viðtal við Sindra Sindrason á Stöð 2 í gær, eftir að listi Viðreisnar í borginni var kynntur. Sindri tók ekki á viðmælanda sínum með neinum silkihönskum, heldur þjarmaði vel að Þórdísi þar sem honum fannst hún gefa heldur loðin svör við spurningum sínum.

„Þórdís, þú segir ekki neitt. Þetta er rosalega lítið,“ segir Sindri til dæmis er honum þykja svör Þórdísar ekki fullnægjandi.

Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, skrifaði upp samtal Sindra við Þórdísi og birti á Facebooksíðu sinni. Margir hafa komið Þórdísi til varnar í athugasemdakerfi Gunnars Smára, þar á meðal Egill Helgason, sem segist ekki viss um að fólk sem sé á sínum fyrsta degi í framboði og sé nýtt í stjórnmálum eigi skilið slíkar „trakteringar“.

Aðrir segja aðfarir Sindra eiga fyllilega rétt á sér, til dæmis segir Þór Saari, fyrrum formaður þingflokks Hreyfingarinnar, að Viðreisn eigi ekkert erindi í borgarmálin með „þessari konu.“

 

[klippa id=“http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTV04A9DED9-B48C-4C4E-B7E0-DDE6170998ED“]

Hér er síðan endurskrift Gunnars Smára:

„Viðtal Sindra Sindrasonar við Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar í borginni, á Stöð 2 var … sérstakt:

Sindri: Nú Þórdís er mætt hérna til okkar, vertu velkomin.

Þórdís: Takk fyrir.

Sindri: Þið mælist með allt að 6% fylgi og einn borgarfulltrúa, segðu okkur frá helstu málunum.

Þórdís: Okkur er mjög umhugað um að setja þarfir borgarbúa í svona fyrsta sæti.

Sindri: Sem þýðir?

Þórdís: Sem þýðir að við ætlum að mæta svona þjónustuþörf fólks í borginni í þessu svona daglega lífi. Við fæðumst og deyjum í þessari borg og við förum í gegnum þessi lífskeið öll og við þurfum ákveðna þjónustu og við höfum ákveðnar þarfir á þessari vegferð okkar. Og þarna viljum við vera. Við viljum bjóða upp á góða þjónustu og framúrskarandi menntun og heildstætt skipulag og samgöngur. Og við erum bara ákveðin í því að gera Reykjavík bara að bestu borg í Evrópu.

Sindri: Þetta var ofboðslega vítt og beitt. Og sagði okkur ofboðslega lítið. Fyrir hverju brennur þú?

Þórdís: Við brennum fyrir fólkinu. Við brennum fyrir iðandi mannlífi, borginni sem er að þroskast og stækka og samt þessari nálægð við náttúruna.

Sindri: Okei.

Þórdís: Og við brennum fyrir að mæta þörfum íbúanna.

Sindri: Okei, svona helsta málefnið sem þú vilt svona ráðast í og telur að ekki sé verið að sinna akkúrat núna?

Þórdís: Við munum setja mikinn fókus á menntamálin.

Sindri: Menntamál, okei. Og númer eitt, tvö og þrjú þarf að ráðast í hvað þar?

Þórdís: Það þarf að koma með nýjar leiðir, við þurfum að vera nýjungagjörn …

Sindri hnussar

Þórdís: … já, við erum bara ákveðin í því að láta til okkar taka.

Sindri: Heyrðu, þetta segir okkur samt ofboðslega lítið. Er ekkert svona eitt sem þú vilt segja áhorfendum; sko, þetta hefur ekki verið nógu vel gert, við viljum ráðast í þetta? Komdu með eitt.

Þórdís: Besta borg í Evrópu, er það ekki flottur mælikvarði.

Sindri: Þórdís, þú segir ekki neitt. Þetta er rosalega lítið.

Þórdís: Við erum í tuttugasta og þriðja sæti núna, borgin á svona alþjóðlegum listum. Og við viljum færa okkur ofar. Það er svo margt sem kemur inn í þetta, það er menntun og það eru skipulagsmál. Þetta viljum við setja fullan fókus á.

Sindri: Okei, er einhver ákveðinn einn … Ég ætla bara að sleppa þér með þetta í dag. Sjáum hvað gerist, sjáum hvað fólkinu fannst. Er einhver einn flokkur sem þú vilt vinna með og eru einhverjir aðrir sem þú vilt alls ekki vinna með?

Þórdís: Við göngum óbundin til kosinga …

Sindri: Okei

Þórdís: … við erum bara að byrja þetta landslag. Nú eru svona ákveðnir flokkar komnir og við erum bara fersk og ný og við erum mætt. Við erum komin með fullan lista og við erum ótrúlega ánægð með það og við erum ótrúlega stolt af þessum sex prósentum og við erum rétt að byrja.

Sindri: Okei, og ætlarðu að verða borgarstjóri?

Þórdís: Já, er það ekki bara?

Sindri: Flott, gangi þér vel og takk fyrir þetta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Í gær

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli