ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma

Bjarni Benediktsson

Formaður Sjálfstæðisflokksins

F. í Reykjavík 26. jan. 1970. For.: Benedikt Sveinsson (f. 31. júlí 1938) hæstaréttarlögmaður og Guðríður Jónsdóttir (f. 19. sept. 1938) húsmóðir. M. (22. júlí 1995) Þóra Margrét Baldvinsdóttir (f. 1. mars 1971). For.: Baldvin Jónsson og Margrét S. Björnsdóttir. Börn: Margrét (1991), Benedikt (1998), Helga Þóra (2004), stúlka (2011).
Stúdentspróf MR 1989. Lögfræðipróf HÍ 1995. Nám í þýsku og lögfræði í Þýskalandi 1995-1996. LL.M.-gráða (Master of Laws) frá University of Miami School of Law í Bandaríkjunum 1997. Hdl. 1998. Löggiltur verðbréfamiðlari 1998.
Fulltrúi hjá sýslumanninum í Keflavík 1995. Lögfræðingur hjá Eimskip 1997-1999. Lögmaður með eigin rekstur á Lex lögmannsstofu 1999-2003.
Í stjórn Hugins, félags ungra sjálfstæðismanna í Garðabæ, 1991-1993, formaður 1993. Framkvæmdastjóri lögfræðiaðstoðar Orators, félags laganema, 1994-1995. Í stjórn Heilsugæslu Garðabæjar 1998-2002. Í skipulagsnefnd Garðabæjar frá 2002. Varaformaður Flugráðs 2003-2007. Formaður knattspyrnudeildar Ungmennafélagsins Stjörnunnar í Garðabæ 2003-2005. Í stjórnarskrárnefnd 2005-2007. Formaður Sjálfstæðisflokksins síðan 2009.

Alþm. Suðvest. síðan 2003 (Sjálfstfl.).
Allsherjarnefnd 2003-2007 (form.), fjárlaganefnd 2003-2007, iðnaðarnefnd 2003-2004 og 2007, sérnefnd um stjórnarskrármál 2004-2007 og 2009 (fyrri), heilbrigðis- og trygginganefnd 2004-2005, utanríkismálanefnd 2005-2009 (form. 2007-2009), 2009-, kjörbréfanefnd 2005-2009, efnahags- og skattanefnd 2007-2009.
Íslandsdeild VES-þingsins 2003-2005 (form.), Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA 2005-2009, Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2009-.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?