Forðist erfðabreytt matvæli

Rottur og mýs verða ófrjóar við neyslu erfðabreyttra matvæla

„Erfðabreyttur matur virðist kveikja á ónæmiskerfi tilraunamúsa og rotta eins og þær séu alvarlega veikar,“ segir Jeffrey M. Smith forstöðumaður stofnunar um skynsama tækni (the Institute for Responsible Technology). „Meltingarkerfið verður fyrir áhrifum, dýrin eldast hraðar og mikilvæg líffæri verða fyrir skemmdum,“ segir hann í grein sinni Dramatic Health Recoveries, í tímariti um heilsufarsmálefni, Vitality.

Í greininni rekur hann heilsufarsleg áhrif sem kunna að verða af því að neyta erfðabreyttra matvæla og segir sögur af fólki sem hætti að neyta slíkrar fæðu og fékk bata af ýmiskonar sjúkleika.

„Þegar tilraunamýs og rottur fá erfðabreytt fæði þá geta þær einnig orðið ófrjóar eða eignast lítil eða ófrjó afkvæmi. Dæmi eru um ýmis afbrigðileg áhrif, svo sem hárvöxt í munni. Hef ég náð athygli ykkar?“ Spyr Jeffrey.

Hið sanna kemur í ljós

Líftæknifyrirtæki á borð við Monsanto reyna að dylja sannleikann, vill Jeffrey meina og segir þá styðjast við eigin rannsóknir sem sýni engin áhrif eða tengsl.

„Monsanto ætti ekki að þurfa að skýra frá öryggi erfðabreyttra matvæla. Hagsmunir okkar eru að selja sem mest af þeim,“ sagði til að mynda Philip S. Angell, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasamskipta hjá Monsanto.

En þegar vísindamenn á borð við hinn franska eiturefnafræðing, G.E Seralini fara yfir sömu gögn og Monsanto leggur fram, kemur annað í ljós. Seralini skoðaði gögn vísindamanna Monsanto en komst að öðrum niðurstöðum en þeir. Hann sá að rottur sem fengu erfðabreytt korn sýndu mikil eitrunaráhrif.

Nánari umfjöllun um erfðabreytt matvæli og ráð til að forðast þau í miðvikudagsblaði DV.

Meira »


Gleymt lykilorð?


Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.