Þegar fólk eignast börn fara hlutir oft að verða hættulegir sem voru það ekki áður. Það á við um skúffur, skápa, salerni, hreinsiefni og margt fleira. Eitt annað sem getur verið varasamt fyrir börn eru leikföng og það er mjög mikilvægt að velja réttu leikföngin fyrir barnið sitt, sem henta aldri þess og þroska.
Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga þegar verið er að velja leikföng fyrir börn:
Hentar þetta leikfang barninu þínu?
Flest leikföng eru með límmiða sem á stendur fyrir hvaða aldur leikfangið er og það má taka þær merkingar gildar. Ef leikfangið er til dæmis ekki ætlað börnum sem eru yngri en 3 ára, þá á alls ekki að leyfa þeim að leika sér með þau því það getur einfaldlega verið hættulegt, fyrir utan að það hentar ekki þroskastigi barnsins.
Hugsaðu stórt
Þangað til barnið er þriggja ára eiga allir hlutar leikfangsins að vera stærri en munnur þess.
Sjáðu fleiri ráð um val á leikföngum í DV.


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum