Pizzur á nóttunni

Aðeins verður hægt að sækja eða borða á staðnum

Það færist í aukana að matvöruverslanir hafi opið allan sólarhringinn en svangir næturhrafnar hafa þó ekki haft tækifæri til að kaupa sér pítsu allar nætur. Það verður breyting á þessu en frá og með deginum í dag, mánudag mun Domino's á Íslandi hafa opið allan sólarringinn í Skeifunni.

Í tilkynningu frá Domino's segir að sólarhringsopnunin sé liður í að mæta breyttum innkaupvenjum viðskiptavina og forsvarsmenn séu bjartsýnir á að sá aukni kostnaður sem þessu fylgi muni skila sér til baka. Þá séu líklegir næturviðskiptavinir vakta- og næturvinnufólk og námsmenn.

Þjónustan gildir eingöngu um pizzur sem keyptar eru á staðnum en ekki verður hægt að fá pizzur sendar heim utan hefðbundins afgreiðslutíma. „Íslendingar hafa tekið vel í næturopnanir og þróunin er sú að sífellt fleiri verslanir á Íslandi hafa opið hjá sér allan sólarhringinn. Það eru ekki allir á sömu klukkunni og því vildum við gera þessa tilraun til að koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar,“ segir Magnús Hafliðason, rekstrar- og markaðsstjóri Domino‘s á Íslandi.

Sólarhingsopnunin verður til reynslu í sumar en ef vel gengur og viðbrögðin verða góð mun Domino's halda því áfram að afgreiða pizzur á nóttunni í Skeifunni.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.