Þriggja ára börn fá sykur úr mjólkurvörum

Fá 7 prósent orkunnar úr sykri

Allnokkrar kannanir hafa verið gerðar á Íslandi á undanförnum árum sem gefa upplýsingar um sykurneyslu barna og unglinga.

Háskóli Íslands og rannsóknarstofa Landspítala hafa staðið fyrir fjölda rannsókna á næringu barna og unglinga. Frá árinu 2007 hefur mataræði þriggja og fimm ára barna verið rannsakað. Sú rannsókn leiddi í ljós að þriggja ára börn fengu að meðaltali 7 prósent orkunnar úr viðbættum sykri og fimm ára börn um 9 prósent.

Önnur rannsókn var gerð 2003–2004 þar sem mataræði 9 og 15 ára barna var rannsakað. Þar kemur fram að 9 ára börn fá um 13 prósent orkunnar úr viðbættum sykri og 15 ára börn um 16 prósent. Nú stendur yfir könnun á mataræði sex ára barna og niðurstöður eiga að liggja fyrir næsta vor.

Ráðlagt er að viðbættur sykur sé að algeru hámarki 10 prósent orkunnar á dag og er því ljóst samkvæmt rannsóknum að íslensk börn neyta of mikils sykurs.

Þegar skoðað er úr hvaða fæðuflokkum eða fæðutegundum börn og unglingar fá mestan viðbættan sykur, sést að 9 og 15 ára börn fá viðbættan sykur úr sykruðum gos- og svaladrykkjum og úr sælgæti og ís. Fimm ára börn fá mestan viðbættan sykur úr kexi og kökum og þriggja ára börn úr mjólkurvörum.

DV ræddi við foreldra og börn um sykurneyslu og matarvenjur í mánudagsblaði DV.



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.