Í flestum matvöruverslunum og nær öllum sjoppum landsins er mikið framboð af sælgæti. Stórir sælgætisbarir stórmarkaðanna eru með gylliboð um helgar og hér á landi er sá siður ríkjandi að bjóða börnum bland í poka á laugardegi. Á Íslandi er bland í poka ódýrast á öllum Norðurlöndunum samkvæmt verðkönnun DV. Á sama tíma standa Íslendingar illa meðal sömu þjóða þegar kemur að offituvandanum.
Í mánudagsblaði DV er umfjöllun um verð á sælgæti og neyslu barna. Auk þess sem rættt er við foreldra og börn um matarvenjur.
Skilaboð tannlækna um að betra sé að hafa einn nammidag í viku frekar en að fá sér sælgætismola á hverjum degi voru skynsamleg og hefðin um laugardagsnammið hefur að einhverju leyti fest rætur hér á landi. En eftir að verslanir hófu að bjóða 50 prósent afslátt af nammibörum á laugardögum hefur þróunin orðið sú að frekar en að spara 50 prósent hefur neyslan tvöfaldast. Þá borða mörg börn sætindi og gos mun oftar en einu sinni í viku.
Nú hafa nokkrar verslanir sett upp veggspjöld sem segja til um hóflegan sælgætisskammt og fer hann eftir aldri barna. Það var Krónan í samvinnu við Matís sem sáu um gerð þessara spjalda. Þar er reglan einföld; einn moli fyrir hvert aldursár barnsins. Magnið byggist á meðalgildum fyrir daglega orkuþörf nokkurra aldursskeiða þar sem miðað er við meðal líkamsþyngd og hreyfingu.
Neytendasamtökin fagna þessu framtaki enda ljóst að sykurneysla Íslendinga er alltof mikil og slæm tannheilsa barna er einnig áhyggjuefni. Fréttir hafa borist af því að Víðir sé ekki með nammibari í sínum verslunum og að í Hagkaupum verði settar upp sambærilegar leiðbeiningar og í Krónunni.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013