Bráðum verður hægt að koma í veg fyrir tannskemmdir en vísindamenn hafa fundið efni sem þeir telja að muni útrýma skemmdum tönnum til frambúðar.
Jose Cordoba, prófessor við Yale-háskóla, og Erich Astudillo, prófessor við háskólann í Santiago í Chile, hafa uppgötvað efnið Keep 32 sem getur komið í veg fyrir tannskemmdir. Efnið er nefnt eftir tönnunum 32 í mönnum og á að geta losað tennurnar við þær bakteríur sem valda tannskemmdum á 60 sekúndum. Þetta kemur fram á vef CBS News en þar segir að vísindamennirnir, sem hafa unnið að því að finna réttu formúluna síðan 2005, hafi einkaleyfi á efninu og leiti nú eftir fjármagni til að prófa efnið á mönnum til langtíma.
Bætt matvæli
Telja vísindamennirnir að hægt verði að setja efnið í tannkrem, munnskol og tannþræði. Það verður jafnvel hægt að bæta því út í matvæli og annað sem er í snertingu við tannholdið í 60 sekúndur segir Erich Astudillo. Þetta er ekki fyrsta varan sem er þróuð til að koma í veg fyrir tannskemmdir því Smart Bomb-munnskolið sem var fundið upp af vísindamönnum við UCLA-háskólann sýndi einnig svipaða virkni og Keep 32.
Tannskemmdir algengasti sjúkdómurinn
„Það er rétt að þessi baktería er aðalástæðan fyrir tannskemmdum en þetta er svolítil einföldun,“ segir Sigurður Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands. Hann bendir á að það séu margar bakteríur sem komi að skemmdum. Hann segir að þetta séu áhugaverðar rannsóknir og komi í ljós að þetta virki og reynist vel í mannlegum tilraunum sé þetta jafnvel framtíðarmöguleiki.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur geta lesið alla fréttina ef þeir velja meira hér fyrir neðan


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013