Veldu réttu ferðatöskuna, settu aukatösku ofan í hana og ekki pakka á síðustu stundu. Þetta er meðal atriða sem gott er að venja sig á, áður en haldið er í sumarfrí. Íslendingar flykkjast í ferðalög þessa dagana og eflaust margar ferðatöskurnar komnar fram á gólf og tilbúnar til að verða fylltar af farangri.
Það vefst þó yfirleitt fyrir ferðalöngum hvað skal taka með og hvaða hlutir eru nauðsynlegir í ferðalagið en ef þú pakkar skipulega í töskurnar verður fríið mun þægilegra og þú munt hafa betri yfirsýn. Á heimasíðu Politiken má finna 20 ráð um hvernig þú pakkar í hina fullkomnu ferðatösku.
Ekki pakka á síðustu stundu
Byrjaðu að pakka nokkrum dögum fyrir ferðalagið og þá sleppur þú við stressið 20 mínútum fyrir brottför.
Skoðaðu vel áfangastaðinn
Vertu búin/n að skoða veðurspána. Hversu heitt eða kalt verður? Lítur út fyrir að það muni rigna, snjóa eða er von á hitabylgju. Skoðaðu hvaða þjónustu hótelið eða gististaðurinn býður upp á; eru handklæði, sængurver og lök. Er hægt að fá hárþurrku, straujárn og hleðslutæki í síma lánað?
Gerðu lista
Nú þegar þú ert búin/n að kanna veður og upp á hvað staðurinn býður þar sem þú munt dvelja, er gott að gera lista yfir það sem þú þarft að hafa með. Fylgdu listanum og ekki taka skyndiákvarðanir um hluti sem eiga að fara með. Ef þeir eru ekki á listanum, þarftu ekki á þeim að halda.
Sjáðu fleiri ráð í mánudagsblaði DV.


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013