Þetta eru ódýrustu vegasjoppurnar

DV gerði verðkönnum hjá 18 veitingasölustöðum vítt og breitt um landið

Á ferð um landið er ódýrast fyrir fjögurra manna fjölskyldu að fá sér ostborgara-fjölskyldutilboð á Vegamótum við Bíldudal. Tilboðið samanstendur af fjórum ostborgurum, frönskum, kokteilsósu og tveggja lítra gosi á 3.200 krónur. Þetta er niðurstaða verðkönnunar sem DV gerði á nokkrum vinsælum tegundum skyndibita sem ferðlangar eiga til að grípa með sér. Söluskáli SJ á Fáskrúðsfirði fylgir þó fast á hæla Vegamótum með eins tilboð á 3.300 krónur. Misjafnt er hvað fjölskyldutilboðin fela í sér en sé tekið mið af fyrrnefndum tilboðum er slíkt töluvert dýrara á öðrum stöðum. Könnunin náði til átján veitingasöluskála vítt og breitt um landið. Ostborgaratilboð fyrir einn er ódýrast í Hamraborg á Ísafirði en þar kostar hamborgari ásamt hálfum lítra af gosi 699 krónur. Ostborgaratilboð hjá Söluskála SJ er einnig nokkuð hagkvæmt, en þar má fá ostborgara, franskar, kokteilsósu og hálfan lítra af gosi á 1.250 krónur.

Algengt verð á pylsu með öllu er um 300 krónur hjá flestum veitingaskálunum. Ódýrustu pylsuna er hins vegar að finna í Víkurskála en þar kostar hún 280 krónur.

Stórt Prins Polo-súkkulaðistykki er ódýrast í Staðarskála en þar kostar það 169 krónur. Algengt er að það kosti í kringum 200 krónur og allt upp í 250 krónur hjá Litlu kaffistofunni þar sem það er dýrast. Þá er einungis hægt að fá venjulega stærð af Prins Polo í Hreðavatnsskála og kostar það 150 krónur.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag

Meira »


Gleymt lykilorð?


Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.