„Um allar tegundir gildir að við eigum að forðast þær þegar þær eru orðnar skemmdar,“ segir Ólafur Reykdal matvælafræðingur sem segir matarsjúkdóma af völdum baktería í grænmeti og ávöxtum hugsanlega en ákaflega fátíða. „Merki um skemmd getur verið mygla auk þess sem bragð og lykt getur verið vísbending. Þroskun er eðlilegur ferill og geymsluþol grænmetis er misjafnt eftir tegundum. Það er ákvaflega mikilvægt að grænmeti sé geymt við þær aðstæður sem henta hverri tegund hvað varðar raka- og hitastig. Ef menn passa sig á því haldast gæðin og næringarefnin.“
Skorpið og næringarsnauðara
Ólafur segir að hægt sé að sjá það á útlitinu hvort tegund sé komin fram yfir sitt geymsluþol. „Grænmetið fer þá að skorpna og verður ljótt en það getur líka gerst ef það hefur ekki verið geymt við réttar aðstæður. Þá getur tapast vatn úr grænmetinu og það sama gildir með ávextina.“
Samkvæmt Ólafi inniheldur gamalt grænmeti minna magn af vítamínum en ferskt grænmeti. „C-vítamín er ágætt dæmi en það er einna óstöðugast. Hér gildir það sama að ef grænmeti er geymt við góðar aðstæður ættu vítamínin að haldast nokkuð vel.“
Lint rótargrænmeti skemmt
Aðspurður segir hann að oftast sé nóg að skera skemmda hlutann í burtu af grænmetinu. „Rótargrænmeti, eins og laukar, geymast mjög lengi við réttar aðstæður. Ef þeir verða linir getur verið um skemmd að ræða. Yfirleitt er nóg að skera lina bitann í burtu en við ættum að forðast slíkt og nota til þess bæði lykt og bragð,“ segir hann og bætir við að ef varan þyki ekki girnileg henti hún ekki til átu. „Allt grænmeti og ávextir geta skemmst. Og það geta líka verið bakteríur utan á grænmetinu. Þess vegna er mælt með að skola það rækilega,“ segir Ólafur og bætir að lokum að einnig sé mælt með því að skola íslenskt grænmeti.
DV fór á stúfana og kannaði ástand grænmetis og ávaxta í nokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Neytendur ættu að vera á varðbergi þegar kemur að því að velja grænmeti og ávexti í innkaupakörfuna en gamalt grænmeti inniheldur minna magn af vítamínum en það ferska. Áskrifendur DV geta lesið hvernig grænmetið var í verslunum ef þeir ýta á meira, en blaðamenn rákust meðal annars á mygluð myntulauf, gulrætur þaktar svörtum blettum og skorpin epli.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum