Sink, breiðvirkni, vatnsheldni og SPF 30+ er meðal þess sem ætti að leita eftir þegar velja skal sólarvörn en á síðu bandarísku samtakanna Environmental Working Group (EWG) eru ráðleggingar um hvað skuli skoða þegar sólarvörn er valin og hvað skuli varast.
Flest erum við meðvituð um áhrif sólarinnar á húð okkar og langflestir eru því duglegir að bera á sig vörn þegar legið er undir heitum geislum hennar á sólarströnd í von um smá lit á kroppinn. Það er hins vegar svo að þó sólin virðist ekki eins sterk hér á landi eru geislar hennar jafn skaðlegir og þá sérstaklega fyrir ljóshærða með ljósa húð.
Því skal velja rétta vörn og fylgja leiðbeiningum um hvernig skuli nota hana. Vert er þó að benda á að sólarvörn ætti aldrei að vera eina vörnin gegn geislum sólar og mikilvægt er að nota einnig föt og hatta til að verjast þeim.
*Það skiptir máli hvað er í sólarvörninni og það er mikilvægt að skoða hvað sólarvörnin þín gerir.
Leitaðu að þessu:
Innihald:
Sink
Titanium díoxíð
Avobenzone eða Mexyrol SX
Vörur:
Breiðvirkandi vörn
Vatnsheld vörn
SPF 30+ fyrir sundlaug og sjó
Forðastu þetta:
Innihald:
Oxybenzone
A-vítamín
Viðbætt skordýravörn
Vörur:
Sprei
Púður
SPF 50+
Sjáðu nánari umfjöllun um sólarvarnir í mánudagsblaði DV.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013