Töluvert hefur verið skrifað um skaðsemi ofneyslu salts.en á síðu Lýðheilsustofnunar segir að með minni saltneyslu megi lækka blóðþrýstinginn töluvert og að áhrifin séu meiri en áður hafi verið talið. Aðrar rannsóknir sýna jafnframt að það sé í raun frekar auðvelt að venja sig af allri þessari saltneyslu og að það taki einungis átta til tólf vikur að venja bragðlaukana af saltinu. Á síðu Food Standards Agency má finna nokkrar mýtur um salt sem vert er að hafa í huga.
Ég get ekki verið að borða of mikið af salti þar sem ég salta ekki matinn sjálf/ur!
Rangt:
Þar sem 75 prósent af saltinntöku okkar kemur úr mat sem við kaupum, svo sem morgunkorni, súpum, sósum, tilbúnum mat og kexi, er auðvelt að innbirgða of miklu af því án þess að bæta við salti. Það nægir í sumum tilvikum að borða aðeins einn eða tvo skammta af ákveðnum matvælum til að vera búinn að fá meira en ráðlagðan dagskammt af salti.
Maturinn er alveg bragðlaus án salts
Rangt:
Ef þú ert vön/vanur mat sem er mjög saltur eða að bæta við salti sjálf/ur er mögulegt að þú munir sakna saltsins til að byrja með. Þetta kemur til vegna þess að bragðlaukarnir eru orðnir vanir því að fá salt, og það mikið af því.
Bragðlaukarnir geta hins vegar vanist hverju sem er og þar með að fá minna salt en áður. Eftir einungis nokkrar vikur er líklegt að þú verður farinn að njóta þess að borða saltminni mat eða jafn alveg saltlaus matvæli. Auk þess getur saltið yfirgnæft annað bragð og þú byrjar að meta það að finna annað bragð af mat.
Þú finnur hvort matur inniheldur mikið salt
Rangt:
Sum matvæli sem innihalda mikið salt eru ekki sölt á bragðið. Stundum er það vegna þess að þau eru mjög sæt, til dæmis kex og morgunkorn. Auk þess geta bragðlaukarnir verið orðnir það vanir salti að þeir merkja ekki hvort maturinn sé saltur. Þegar fólk borðar mikið salt verða bragðlaukarnir ónæmir fyrir því. Það mun því koma á óvart hve mörg matvæli eru sölt þegar þú hefur vanið bragðlaukana af því.
Sjáðu fleiri mýtur um salt í miðvikudagsblaði DV.


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013