Nú þegar vetur konungur er loks að sleppa takinu af okkur þá er tími til kominn að þrífa bílinn eftir veturinn. Á Íslandi koma bílarnir oft illa undan vetri og mikilvægt að þrífa þá hátt og lágt, jafnt að innan sem utan til að þeir endist sem lengst.
Á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir að nauðsynlegt sé að þrífa salt- og tjöruagnir af lakkinu með affitandi hreinsiefnum. Þá sé rétt að nota þessi efni eingöngu á þvottaplönum bensínstöðva en þar eigi að vera niðurföll með skiljum vegna óæskilegra leysiefna. Þegar búið er að skoða bílinn vel skuli þvo hann með sápulegi og volgu vatni. Best sé að byrja á toppinum og vinna sig niður og enda á felgum bílsins. Meðan á sápuþvotti stendur eigi að skola bílinn vel og reglulega. Ekki megi gleyma að þrífa innan á dyrakörmum og undir hurðum en þar er oft hætta á ryði. Þá segir að að lokum skuli þurrka bíllinn með vaskaskinni eða gúmmísköfu, byrjað að ofan og haldið niður.
Þegar bíllinn er þrifinn að innan er best að taka motturnar úr bílnum og hann ryksugaður að innan. Á fib.is er bent á að flestar bensínstöðvar hafi góðar og kraftmiklar ryksugur en heimilisryksugur séu í flestum tilvikum ekki ætlaðar til notkunar utanhúss eða þar sem hætta er á raka. Mikilvægt sé að teppi séu ekki blaut eða rök undir gúmmímottum og raka verði að þerra upp til að hindra óæskilega lykt og myglu. Best sé að þurrka undir teppum en annars sé gott húsráð að setja gömul dagblöð undir gúmmímottur og draga rakann þannig úr teppum.
Rúður skuli þrifnar að innan með rúðuhreinsiefni, mælaborð, hurðarspjöld og annað þrifið með rakri tusku.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi