Samtökin Já Ísland bjóða almenningi að skoða samanburðinn á því hvað kostar að taka húsnæðislán á Íslandi og hvað það kostar í Evruríki. Er um leið spurningunni „Hvað hefði þjóðin grætt á því að vera Evruríki“ varpað fram.
Á vefsíðu Já Ísland er munurinn á lánunum sagður sláandi og íslensk heimili sögð borga milljónir á ári hverju fyrir að hafa íslenska krónu.
„Stærsta hagsmunamál heimilanna er að losa þau undan þessum gífurlega kostnaði og óvissu sem felst í því að halda í krónuna. Það er hægt að spara heimilunum í landinu þann gífurlega kostnað sem fylgir krónunni og koma þannig í veg fyrir þá miklu áhættu sem hvert heimili í landinu tekur á sig þegar tekið er venjulegt húsnæðislán sem getur stökkbreyst með litlum fyrir vara,“ segir á vefsíðu samtakanna.

Hemmi Gunn fallinn frá