Þú sparar 218.000 krónur í eldsneytiskostnað á ári með því að skipta úr 2005-árgerðar bíl yfir í nýjan bíl á grænu bílaláni, samkvæmt útreikningum Ergo.
Auk þess sparar þú þér tæplega 25.000 krónur í bifreiðagjöld og þú hlífir umhverfinu við 2.000 kílóum af CO2-útblæstri. Græn lán bera auk þess ekki lántökugjald en slíkt gjald fer eftir lengd lánins. Sem dæmi þarf að greiða 78.750 krónur í lántökugjald fyrir 3.000.000 króna bíl sem er keyptur með 75 prósenta láni.
Á heimasíðu Ergo hefur nú verið birtur listi yfir eyðslugrennstu, umhverfisvænstu og hagkvæmustu bílana sem hægt er að fá í dag. Þessir bílar eru í útblástursflokki A, B og C, sem þýðir að þeir losa 120 grömm af CO2 eða minna og því standa græn lán til boða við kaup á þeim. Þeir bílar sem falla undir þessa skilgreiningu bera einnig lægri vörugjöld en eyðslufrekari bílar. Þar að auk fá eigendur grænna bíla frítt í bílastæði í miðborginni.
Sjáðu nánari umfjöllun um græna bíla í miðvikudagsblaði DV.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013