Flestir tengja grillmat við steikur, hamborgara og annað kjötmeti en það eru til ýmsir hollari kostir sem má skella á grillið á sumarkvöldi. Paprika, maísstönglar og eggaldin eru nokkrar tegundir grænmetis sem er gómsætt á grillið. Það er hægt að grilla grænmetið á mismunandi vegu til að mynda í heilu lagi á álpappír eða skera það í grófa bita og þræða á pinna. Heilgrillaður laukur og hvítlaukur sem meðlæti er hollur og bragðgóður kostur en auk þess eru ostafylltir sveppir algjört lostæti og má nota þann ost sem hverjum og einum þykir bestur. Þá má grilla flestar tegundir grænmetis og það eru um að gera að prófa sig áfram og hræðast ekki nýjungar. Svo má ekki gleyma að nefna fiskinn sem er alltaf hollur grillréttur.
DV hefur fengið nokkra einstaklingar til að gefa lesendum hugmyndir að góðum grænmetisgrillréttum, meðlæti eða öðrum hollum kostum á grillið sem tilvalið er að prófa í sumar.
Sólveig Eiríksdóttir á Gló deilir þessari uppskrift:
Grillaðar eggaldinrúllur með geitaosti og klettasalati
1 eggaldin
Nokkrar msk. ólífuolía
Smá salt og nýmalaður svartur pipar
½ dl geitaostur – má nota fetaost eða maukaðar kjúklingabaunir
3 msk. ferskur kóríander, smátt saxaður – má nota steinselju
½ dl valhnetur, smátt saxaðar
4 döðlur, smátt saxaðar
½ rauður chili-pipar, steinhreinsaður og smátt saxaður
Handfylli klettasalat
Aðferð:
Skerið eggaldinið í ½ cm þunnar sneiðar eftir endilöngu. Penslið með ólífuolíu og kryddið með smá salti og nýmöluðum svörtum pipar. Setjið á heitt grillið, galdurinn er að snúa þeim reglulega svo eggaldinið nái að eldast og grillast. Hrærið saman geitaosti, kóríander, valhnetum, döðlum, chili, smá salti og nýmöluðum svörtum pipar. Setjið 1 matskeið af fyllingu og nokkur klettasalatlauf á endann á hverri rúllu. Rúllið upp, setjið á fat, stráið smá ólífuolíu yfir og berið fram.

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi