Hægt er að fá ódýrari matvöru í sumum matvöruverslunum hér á landi ef þær eru að nálgast eða komnar á síðasta söludag.
DV hafði samband við nokkrar helstu matvöruverslanir landsins til að athuga hvort þær bjóði sínum viðskiptavinum að kaupa vörur sem eru komnar á síðasta söludag á hagstæðu verði.
Misjafnt er hvað þær bjóða upp á en sumar hafa ekki veitt slíka afslætti markvisst heldur setja valdar vörur á niðursett verð þegar þær nálgast síðasta söludag. Aðrar veita afslátt af grænmeti sem er ekki fyrsta flokks og enn aðrar lækka verð á þurrvöru einungis.
Danska verslanakeðjan Rema 1000 hefur hins vegar tekið upp þá stefnu að selja vörur sem eru komnar á síðasta söludag á spottprís. Þá er slíkum vörum safnað saman, þær eru settar í sérhillur og merktar sérstaklega. Í samtali við Politiken segir innkaupastjóri verslunarinnar að markmiðið sé að hafa vörurnar vel merktar til að hafa þær sem sýnilegastar. Þetta sé ekki gert til að græða, heldur til að koma í veg fyrir að henda þeim og til að veita viðskiptavinum möguleika á að fá vörur á lægra verði. Vörurnar sem um ræðir eru brauðmeti, kjöt, álegg og mjólkurvörur.
Samkvæmt upplýsingum frá íslensku verslununum er lítið um að brauðmeti, kjöt, álegg og mjólkurvörur sé sett á afslátt og fáar hafa þá stefnu að selja allar þær matvörur á síðasta söludegi á niðursettu verði, sem væri góður kostur fyrir neytendur.
Sjáðu hvað íslenskar verslanir bjóða upp á í miðvikudagsblaði DV.


Hemmi Gunn fallinn frá