Þrátt fyrir að rafhlöður séu orðnar vistvænni er jafn mikilvægt að koma þeim í endurvinnslu og áður. Þær eru spilliefni og hafa skaðleg áhrif á heilsu og umhverfi og innihalda efni sem geta haft alvarlegar afleiðingar, sleppi þau út í náttúruna.
Um þetta má lesa á síðu Úrvinnslusjóðs en þar er fjallað um skaðsemi rafhlöðunnar og hvernig við getum komið í veg fyrir að skaða náttúruna. Þar segir að þungamálmarnir blý, kvikasilfur og kadmíum séu allir eitraðir og eigi það sameiginlegt að safnast upp í líkamanum. Í stað þess að skiljast út úr líkamanum í formi þvags, hægða eða svita, verði þeir eftir í líkama manna og dýra og safnast upp. Kvikasilfur geti valdið skaða á miðtaugakerfi og nýrum og safnist fyrir í vöðvum og taugakerfi. Kadmíum geti valdið nýrnaskaða og vansköpun á beinagrind. Blý safnist upp í lifur, nýrum og milta en aukið magn af blýi í heila barna hefur í för með sér minnkandi getu til að læra og náttblindu. Auk þess valdi krónísk blýeitrun blóðleysi og truflunum í taugakerfi.
Það ætti aldrei að henda rafhlöðum í ruslið og engin afsökun fyrir því. Það er einfalt að koma þeim í endurvinnslu þar sem söfnunarstöðvar sveitarfélaga, söluaðilar rafhlaðna og bensínstöðvar taka á móti rafhlöðum. Auk þess sem hægt er að setja þær í endurvinnslutunnur fyrir flokkað heimilissorp. Þaðan fara þær til fagaðila til flokkunar eftir innihaldi og möguleikum til endurnýtingar.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Eurovison 2013
Alþingiskosningar 2013
Harmleikur á Egilsstöðum