Það getur verið erfitt að finna bestu mögulegu geymsluaðstæður fyrir banana þar sem þeir geymast best við 12 til 14 gráður. Ísskápurinn er of kaldur og stofuhiti of hár. Það er verri kostur að hafa þá í ísskáp þar sem þeir grána og missa bragð og þótt þeir eyðileggist ekki beint þá missa þeir viss gæði við kuldann.
Þegar þeir eru geymdir við stofuhita þá þroskast þeir of hratt og því fáir staðir í húsinu þar sem hitastigið er tilvalið fyrir banana. Það eru helst þeir sem eru með kaldan kjallara eða kalda geymslu sem gætu fundið geymslustað fyrir banana.
Sé epli geymt nálægt banana þroskast hann enn hraðar en ella. Ástæðan fyrir þessu er að epli gefa frá sér vaxtarhormón sem ber nafnið etýlen sem flýtir fyrir þroska ávaxta og grænmetis sem eru í nánd við eplin. Bananar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir þessu og verða fljótt ofþroskaðir. Það er þó óþarfi að henda banönum sem eru komnir yfir það þroskastig sem hentar til átu því þá er alveg upplagt að nota þá þannig í ýmsa rétti og í brauð og kökur.
Á síðunni hus-raad.dk er gefið ráð til að lengja endingartíma banana við stofuhita. Þar segir að ef maður pakkar hverjum banana fyrir sig inn í pappír þá ættu þeir að endast örlítið lengur.

Hemmi Gunn fallinn frá