„Ef þú ert enn að borga 4 prósent í viðbótarlífeyrissparnað þá er verið að tvískatta lífeyrissparnaðinn þinn. Þú borgar skatt þegar þú setur peninginn þinn inn og þú borgar skatt þegar þú tekur hann út,“ segir Þorsteinn Pétursson, sölustjóri Tryggingavaktarinnar, sem hvetur fólk til að ganga úr skugga um að ekki séu tekin meira en 2 prósent af launum. Einfaldasta leiðin til þess er að skoða launaseðilinn þinn.
Ástæðan fyrir þessu er að um áramótin var tekjuskattslögum breytt á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattstofni lækkaði úr 4 prósentum í 2 prósent. Með lagasetningunni ber launagreiðendum að tryggja að frjálst framlag launafólks í viðbótarlífeyrissparnað verði ekki umfram 2 prósentin.
Hann segir launabókhald hvers fyrirtækis eigi að sjá um að breyta þessu en hvetur þó fólk til að skoða launaseðla sína og ganga úr skugga um að það hafi verið gert. „Öll stærri fyrirtækin hugsa fyrir þessu en kannski ekki þau minni. Það er allur gangur á því, eins og við vitum.“


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013