Lúther Pálsson og Vilhelm Sverrisson eru meðal þeirra atvinnubílstjóra sem gefa lesendum góð ráð í DV í dag. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Bensínverð náði sögulegu hámarki fyrir skömmu og kostar nú lítrinn rúmar 245 krónur. Eldsneytishækkanir koma einna verst niður á leigubílstjórum og öðrum atvinnubílstjórum. DV heimsótti kaffistofu Hreyfils við Grensásveg og ræddi við nokkra bílstjóra um eldsneytisverð, verðhækkanir og leiðir til sparnaðar.
Í janúar fyrir tveimur árum kostaði ódýrasti bensínlítrinn 191,5 krónur og fyrir ári var hann kominn í 212,7 krónur. Bílstjórarnir hjá Hreyfli voru sammála um alvarleika málsins fyrir atvinnu þeirra en einn sagði að í raun væri hann bara að vinna fyrir kostnaði. Auk þess hefði þetta áhrif á verðlag leigubíla og að gjaldskrá þeirra myndi hækka. Einn þeirra vildi taka fram að leigubílar ættu að vera hluti af almenningssamgöngum. „Við þyrftum að fá borgaryfirvöld og ríkið til að viðurkenna okkur sem hluta af almenningssamgöngum. Það er alltaf verið að tala um að gera bílaflotann vistvænni og ef við gætum fengið grænna eldsneyti á lægra verði kæmi á móti lækkun á verðskrá leigubíla. Til dæmis er Strætó niðurgreiddur um hundruð milljóna og á Selfossi eru leigubílar niðurgreiddir,“ sagði einn bílstjóranna. Annar sagði að það mætti jafnvel fækka bensínstöðvum í Reykjavík og lækka eldsneytiskostnaðinn á móti.
Leigubílstjórarnir ræddu við blaðamann um bensínhækkanir og gefa lesendum nokkur góð bensínsparnaðarráð í DV í dag.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 


Vill kæra rangt verð til lögreglunnar
Vorþvottur bílsins
Veldu rétta hjólið fyrir þig
Reiknaðu muninn á húsnæðisláni á Íslandi og í Evruríki
Grænmeti og annað góðmeti á grillið
