ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Villandi myndir á sígarettupökkum

Mynd sem á að sýna skaðsemi reykinga sýnir eitthvað allt annað
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:30 › 22. febrúar 2012
  • Myndin sýnir ekki afleiðingar tóbaksreykinga. Samt er myndin notuð til að vara við tóbaksreykingum.

    Myndin sýnir ekki afleiðingar tóbaksreykinga. Samt er myndin notuð til að vara við tóbaksreykingum.

Myndir sem til stendur að setja á alla sígarettupakka og eiga að sýna skelfilegar afleiðingar tóbaksreykinga gefa ekki endilega rétta mynd af raunverulegum afleiðingum þeirra. Þetta er mat danskra sérfræðinga í tannlækningum en fjallað er um málið á vef danska blaðsins Politiken.
Á þessu ári stendur til að breyta umbúðum á reyktóbaki þannig að þær beri myndir sem eiga að sýna slæmar afleiðingar tóbaksnotkunar. Þetta er gert að undirlagi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO, og munu umbúðir tóbaksins bera sambærilegar myndir og sést hér til hliðar. Breytingin tók gildi í Danmörku fyrir skemmstu og mun síðan taka gildi í fleiri Evrópusambandsríkjum á næstu mánuðum. Palle Holmstrup, sérfræðingur í tannlækningum, gagnrýnir hins vegar að meðfylgjandi mynd sýni eitthvað allt annað en afleiðingar tóbaksreykinga.
„Skilaboðin um skaðsemi reykinga eru góð og gild. En að mínu mati er það ófaglegt að nota mynd sem þessa. Hún sýnir ekki afleiðingar tóbaksreykinga,“ segir Palle og bætir við að myndin sýni einfaldlega mjög slæmt dæmi tannskemmda. Tóbaksreykingar einar og sér geti ekki haft þessar afleiðingar og allir tannlæknar viti það.
Í umfjöllun Politiken kemur fram að belgísk auglýsingastofa hafi hannað meðfylgjandi mynd – ásamt rúmlega 40 öðrum – að beiðni framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins árið 2005. Dönsk yfirvöld völdu fjórtán myndir sem þau töldu henta fyrir danskan markað og var umrædd mynd þar á meðal. Samkvæmt frétt Politiken munu dönsk heilbrigðisyfirvöld skoða hvort tilefni sé til að endurskoða þær myndir sem valdar voru.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?