Það sem margir reka sig á þegar þeir hafa fundið ákveðna vöru er að margar verslanirnar senda ekki vörur til Íslands. Photos.com
Fatnaður, verkfæri, ýmiss konar íþróttavörur og barnavörur eru þeir hlutir sem má spara töluvert á að kaupa á netinu. Netverslun er sífellt að aukast og Íslendingar eru í meira mæli farnir að notfæra sér þetta og kaupa vörur að utan í gegnum netið.
Það þarf þó að hafa í huga að sendingarkostnaður, tollar og skattar bætast við verðið. Signý Sigurðardóttir, rekstrarstjóri ShopUSA, útskýrir hvernig best er að bera sig að þegar kemur að verslun á netinu.
„Hvað varðar verslun á netinu almennt þá höfum við á Íslandi verið lengi að taka við okkur sem er mjög merkilegt miðað við hvað við erum alltaf nýjungagjörn. Það virðist þó vera einhver aukning í þessu núna og þú getur gert ótrúleg kaup á netinu. Ekki einungis getur þú fengið ódýrari vörur heldur er úrvalið miklu meira. Við erum svo misjöfn og úrvalið hér heima mjög takmarkað á mörgum sviðum. Í Bandaríkjunum er gert ráð fyrir því að fólk sé af öllum stærðum og gerðum. Þú getur fundið hvað sem er þar enda eru allar stóru verslanirnar farnar að selja vörur á netinu,“ segir Signý en bætir við að verslun á netinu sé ákveðið lærdómsferli. Þetta sé eins og með margt annað sem er manni framandi og til að byrja með virðist þetta vera ógurlegur frumskógur upplýsinga. „Maður þarf að læra á þetta, síðurnar eru mismunandi en það er mikil þróun í þessu.“
Meira »


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Vill kæra rangt verð til lögreglunnar
Vorþvottur bílsins
Veldu rétta hjólið fyrir þig
Reiknaðu muninn á húsnæðisláni á Íslandi og í Evruríki
Grænmeti og annað góðmeti á grillið
