ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Humar innkallaður

Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is
14:00 › 9. janúar 2012
Humarsalan ehf. breytir nú  merkingum á umbúðum með skelbrotnum humri.

Humarsalan ehf. breytir nú merkingum á umbúðum með skelbrotnum humri. Matvælastofnun

Á vef Matvælastofnunar kemur fram að Humarsalan ehf. hafi tilkynnt stofnuninni að fyrirtækið sé að breyta merkingum á umbúðum með skelbrotnum humri.

Varan innihaldi súlfít, sem skylt sé að merkja samkvæmt reglugerð um merkingar. Þar segir að varan sem beri heitið „Blandaður humar“ sé í 1 kílógramms plastpokum, nettóþyngd humars í skel sé 900 grömm en 10 prósent þyngdar séu varnaríshúð. „Súlfít hefur mjög lengi verið notað við framleiðslu á humri og er því ekki um neina nýjung að ræða.

Merkingar á súlfíti hafa hin svegar ekki verið á umbúðum eins og skylt er. Humarsalan hefur því látið stöðva sölu á vörunni í verslunum þar til að varan hefur fengið viðeigandi merkingar,“ segir á mast.is.

Súlfít er talið geta valdið ofnæmi, sé það yfir tilteknu magni, hjá fámennum hópi neytenda. Súlítofnæmi er þó afar sjaldgæft að sögn Landlæknisembættisins. Þeir sem kunna að eiga þessa vöru til í frysti eða kæliskáp geta haft samband við Humarsöluna ehf, Básvegi 1 í Reykjanesbæ, sími 867-6677 og fengið henni skilað.

Meira »



Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?