ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Bætir meltingu og örvar blóðrás

Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is
23:15 › 9. janúar 2012

Engifer er talið vera allra meina bót og sumir kokkar segja að aldrei sé hægt að nota of mikið af engiferrót eða hvítlauk. Um þetta er rætt á nattura.is en þar segir að gott sé að hita sneiðar af engiferrót og sítrónu í vatni og drekka við kvefi. Engiferdrykkurinn sé heilnæmur og þægilegur ef hita þarf eitthvað handa mörgum. Það megi bera drykkinn fram, hvort sem er heitan eða volgan og sé hann ávallt hressandi. Eins sé venjulegt engiferduft, sem fæst í verslunum, til margra hluta nytsamlegt en það er talið bæta meltingu og örva blóðrás. Fyrir þá sem finnst bragðið ekki gott er ráð að hræra því út í jógúrt eða súrmjólk.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?