ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Gerðu góð kaup á útsölunum

Allt að 75 prósenta afsláttur
Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is
13:09 › 4. janúar 2012
Það var fjöldi viðskiptavina í Kringlunni á upphafsdegi útsölunnar

Það var fjöldi viðskiptavina í Kringlunni á upphafsdegi útsölunnar Sigtryggur Ari Jóhannsson

Margar verslanir byrjuðu með útsölu í vikunni og ætla má að landsmenn reyni að gera góð kaup á hinum ýmsu vörum. Í Kringlunni og Smáralind hófst útsalan í byrjun vikunnar og stendur yfir út janúar. Að venju taka svo við götumarkaðir þegar útsölulok verða.

DV fékk upplýsingar um þá afslætti sem nokkrar verslanir bjóða upp á en segja má að algengasti afslátturinn sé á milli 30 til 40 prósent. Nokkrar verslanir hafa lækkað verð á öllum vörum en sums staðar voru valdar vörur á allt að 75 prósenta afslætti. Þannig gæti fólk fundið ný jakkaföt á 70 prósenta afslætti og sjónvarp á 65 prósent lægra verði en áður.

Þeir kaupmenn sem rætt var við voru sammála um að útsölurnar hafi farið vel af stað og margt hafi verið um manninn. „Þetta lítur vel út og fólk var greinilega farið að bíða eftir útsölunni,“ sagði einn þeirra og annar nefndi að salan hefði verið ótrúlega góð strax fyrsta daginn.

Þeir voru einnig sammála um að verðlækkanir séu með svipuðu sniði og fyrir ári. Einnig má búast við að verð lækki enn frekar eftir því sem líður á mánuðinn. Það verður því væntanlega hægt að gera betri kaup síðar en auðvitað er sú hætta til staðar að flíkin eða hluturinn sem óskað er eftir verði uppseldur.

Meira »



Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?