ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Hér eru mestu útsölurnar

DV skoðar tilboð á ústölum
Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is
10:42 › 2. janúar 2012
Hægt er að kaupa ný föt á allt að 80 prósenta afslætti.

Hægt er að kaupa ný föt á allt að 80 prósenta afslætti.

Útsölur hefjast víða í dag og búast má við að landsmenn geti gert góð kaup. DV hefur tekið saman þau tilboð sem nokkrar verslanir bjóða nú í útsölubyrjun.

Sumar verslanir byrjuðu með útsölurnar fyrir áramót en Í Kringlunni og Smáralind hefjast þær í dag. Kringlan hefur auglýst að þar sé opið til klukkan 21.00 í kvöld og á vef Smáralindar segir að þar muni verða hægt að fá vörur á allt að 70 prósenta afslætti.

Varðandi fatakaup þá auglýsa fatabúðir mikinn afslátt. Í Dressman er til dæmis auglýstur allt að 70 prósentum. Gallerý 17 bíður 40 prósenta afslátt af öllum útsöluvörum en sama tilboð má finna í Evu og Polarn O. Pyret. 3-smárar auglýsa 50 prósenta afslátt af öllum vörum en í versluninni á Laugavegi er hafin rýmingarsala þar sem allt er á 60 til 80 prósenta afsláttur.

Raftækjaverslanir bjóða einnig upp á góðan afslátt en Heimilistæki auglýsir Risaútsölu þar sem hægt er að fá vörur á allt að 75 prósenta afslætti. Rafkaup selur vörur á 10 til 70 prósentaafslætti og Rafha á allt að 50 prósenta afslætti.

Útivistar- og íþróttafatnað má fá á 50 til 80 prósenta afslætti í Útivist og Sport og Nicorette vörur er nú á 20 prósenta afslætti í Lyf og Heilsu.

Lín Design má fá vörur 15 til 50 prósentum ódýrari en áður og í Línunni er auglýstur allt að 50 prósenta afsláttur.

Vert er að hafa í huga að margir verslunareigendur nota þennan fyrsta virka dag ársins til talningar.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?