Ef mataræði þitt er ríkt af vítamínum og Omega 3 fitusýrum áttu minni hættu á heilarýrnun og að fá Alzheimer sjúkdóminn. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem birtist í vefritinu Neurology, læknariti American Academy of Neurology, þann 28. desember 2011. Það er því mikivægt að borða rétt „heilafæði“.
Rannsóknin sýndi enn fremur að þeir sem borða mat sem er ríkur af Omega 3 og vítamínunum C, D, E og B standa sig betur á prófum sem reyna á minnið. Fitusýruna fær maður aðallega úr fiski en vítamínin úr grænmeti.
Aftur á móti eiga þeir sem borða mat sem inniheldur mikið transfitu meiri hættu á heilarýrnun og koma verr út úr minnisprófum en þeir sem forðast transfituna. Hana fáum við til dæmis úr forpökkuðum og steiktum mat, í skyndibita og tilbúnu frosnu bakkelsi. Fituna má þó einnig finna í feitum mjólkurvörum og feitu kjöti.
Rannsóknin náði yfir 104 manan hóp þar sem meðalaldur var 87 ára og sem voru ekki í áhættuhópi þeirra sem eiga á hættu að þjást af minnisvandamálum. Blóðprufur voru teknar til að meta mismunandi næringu í blóði hvers og eins þátttakanda og allir voru þeir látnir taka hugsunar- og minnispróf. Eins fóru 42 þeirra í heilaskanna til að mæla heilavirknina. Í heildina voru þátttakendur vel staddir næringarlega séð en sjö þeirra skorti B12 og 25 prósent þeirra skorti D vítamín.
Niðurstöðurnar sýna að mataræðið hefur mikið að segja en ákveðin næringargildi í blóði sýna tengsl við bæði breytileika í rúmmáli heila og við niðurstöður úr minnis- og hugsunarprófum. Gildi ákveðinna næringarefna í blóði skýrðu 17 prósent af breytileika í niðurstöðum úr prófunum, á meðan aðrir þættir eins og aldur, lengd menntunar og hár blóðþrýstingur skýrðu 46 prósent af breytileikanum. Gildi þessara næringarefna í blóði skýrði hins vegar 37 prósent af breytileika þegar litið var á rúmmál heila.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Vill kæra rangt verð til lögreglunnar
Vorþvottur bílsins
Veldu rétta hjólið fyrir þig
Reiknaðu muninn á húsnæðisláni á Íslandi og í Evruríki
Grænmeti og annað góðmeti á grillið
