Margir sem hafa fengið 110 prósenta leiðina samþykkta eru komnir í pattstöðu. Sigtryggur Ari Jóhannsson
„Í fyrsta lagi er 110 prósenta leiðin galin og algjört rugl. Það var bara verið að lögfesta einhverja leið til að sýnast og með henni er verið að fella niður skuldir sem eru hvort eð er tapaðar,“ segir Guðmundur Andri Skúlason, hjá Samtökum lánþega þegar saga ungra hjóna er borin undir hann en þau segja farir sínar ekki sléttar eftir að þau voru samþykkt til að fara 110 prósenta leiðina.
„Við erum ung hjón með tvö börn, erum reglusöm og höfum aldrei verið í vanskilum. Við erum búin að reyna allt og viljum segja sögu okkar í von um að hún sýni fram á að 110% leiðin er engin lausn fyrir fjölda fólks og hálfgerður skrípaleikur,“ segir konan en þau hjónin vilja ekki koma fram undir nafni.
Hún segir þau vera búin að reyna allt en leiðin sé meingölluð fyrir þá sem fóru ekki fram úr sér við íbúðakaup. „Við vitum ekki hvað við eigum að gera núna. Við erum búin að fylgja þessu eins fast eftir og við getum og erum orðin fúl og reið. Við erum heiðarleg og dugleg og búin að gera allt sem við getum en erum núna hreinlega farin að hugsa um að hætta að borga,“ segir hún að lokum.
Guðmundur Andri segir að í öðru lagi sé það algjörlega út í hött að það sé lagt í hendurnar á mönnum úti í bæ að meta hversu mikið á fella niður af skuldum en þar vísar hann til þess að sýnt hafi verið fram á að fasteignasalar geti sett fram afar mismunandi verðmat á eignum fólks. Eðlilegra sé að styðjast við fasteignamat sem er opinber tala.
„Í þriðja lagi eru þessi ungu hjón, eins og fjölmargir aðrir, í þeirri stöðu að þau losna ekki út úr þessu svo glatt. Þau geta ekki borgað, ekki selt og eru yfirveðsett. Eina vitið hjá þeim er að fara í gjaldþrot. Það tekur 2 ár í stað þess að hlaupa eins og hamstur á hjóli í 3 til 5 ár í 110 prósenta leiðinni og þá jafnvel sitja enn uppi með yfirveðsetta eign. Þetta er eina úrræðið sem virkar.“
Hann segir að Samtök lánþega hafi aðstoðað fjölda fólks við að fara í gegnum gjaldþrot og það fólk sé mun ánægðara en þeir sem þráast við. Aðspurður hvað gerist ef allir þeir sem eru í þessari pattstöðu ákveði að fara í gjaldþrot segir Guðmundur Andri að þá sætu bankarnir uppi með gríðarlegt magn af eignum. „Það yrði erfitt að koma þessum eignum út á markaðinn nema með tilheyrandi verðhruni sem mundi leiða til þess að fleiri færu í gjaldþrot. Það mundi skapa samfélaginu öllu mikið tjón og hér sést vel hve 110 prósenta leiðin er gölluð. Hún hjálpar ekki neinum neitt.“
Meira »


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 


Vill kæra rangt verð til lögreglunnar
Vorþvottur bílsins
Veldu rétta hjólið fyrir þig
Reiknaðu muninn á húsnæðisláni á Íslandi og í Evruríki
Grænmeti og annað góðmeti á grillið
