ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

McDonalds ekki á leið til Íslands

„Það er ekkert til í því og ég veit ekki hvaðan sú hugmynd er sprottin“
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
09:34 › 14. janúar 2012
Íslendingar verða að bíða lengur eftir endurkomu McDonalds

Íslendingar verða að bíða lengur eftir endurkomu McDonalds

Það voru eflaust margir sem hoppuðu hæð sína af kæti þegar að fréttir þess efnis að McDonalds væru á leið aftur til Íslands bárust í gær. Tímaritið Vol.is sendi út frétt þess efnis að McDonalds hefði gengið frá samningum við N1 um að opna McDonalds staði á bensínstöðvum út um land allt og búið væri að semja til tíu ára um tíu staði. Fréttin birtist víðar, til dæmis vitnaði fréttavefur RÚV í umrædda frétt, áður en hún var tekin út af vef ríkisfjölmiðilsins.

Samkvæmt Hermanni Guðmundssyni forstjóra N1 er þetta þó ekki á rökum reist og segir hann enga samninga hafa verið gerða þess efnis. „Það er ekkert til í því og ég veit ekki hvaðan sú hugmynd er sprottin,“ segir Hermann. „Það hefur enginn rætt við þá eða nokkur maður minnst á þetta innanhúss hjá okkur.“

Íslendingar verða því að bíða heldur lengur eftir því að Mcdonalds snúi aftur en skyndibitakeðjan hætti hér á landi árið 2009 þar sem fyrirtækið sem átti réttinn á vörumerkinu hér á landi, Lyst ehf, þurfti að kaupa aðföng erlendis vegna sérstakra staðla McDonalds og reyndist það vera of stór biti fyrir fyrirtækið í erfiðu efnahagsumhverfi.

Frétt vol.is McDonalds kemur aftur til Íslands





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?