Skúli Helgason alþingismaður og fjölskylda hans hafa verið grænmetisætur síðan sumarið 2003. Hann segir að eins og flestar góðar hugmyndir hafi þessi komið frá konu hans en hún hafði tekið af skarið og var búin að vera grænmetisæta í nokkur misseri á undan.
„Við vorum á leið til Bandaríkjanna í nám og mér fannst það ágætur tímapunktur að segja skilið við kjötið áður en maður færi inn í þetta mikla vígi hormónakjötsins. Það má eiginlega segja að þetta séu þessi klassísku rök úr Dýrunum í Hálsaskógi, að ekkert dýr má borða annað dýr,“ segir hann.
Skúli segir að þau borði dýraafurðir, svo sem mjólkurvörur og egg, en ekkert kjöt en hann sé sá eini sem borði stundum fisk. „Ég borða hann stundum í vinnunni en það er bara mín sérviska og kannski þjóðarstoltið sem kemur upp. Heima borðum við eingöngu grænmetisrétti og mat sem kallar ekki á að dýr þurfi að deyja fyrir okkar hönd.“
Synirnir fylgja einnig þessu mataræði en Skúli segir að það hafi komið skemmtilega á óvart hve þeir séu harðir í grænmetinu. Þau hjónin hafi strax ákveðið að leyfa drengjunum að ráða og þeir hafi haldið mataræðinu síðan. „Þeir eru jafnvel harðari en við.“ Það hafi þó stundum verið flókið fyrir þá utan heimilisins og þeir hafi þurft að fá sérstakan mat í skólanum sem hafi gengið upp og ofan. Synirnir hafi þó aldrei gefið eftir með þetta.
Aðspurður hvort honum finnist þetta hafa áhrif á heilsuna og almenna líðan segist Skúli hafa fundið það strax. „Við höfum verið býsna heilsuhraust eftir við tókum þetta skref þannig að ég mundi mæla með þessu. Ég geng ekki um með eldibrand og boða þetta fagnaðarerindi en þetta hentar okkur vel og hver og einn verður að gera upp við sig hvort hann vilji taka þetta skref. Ég held að þetta sé sniðugt fyrir fólk sem er opið fyrir nýjungum, að prófa þetta og taka svo ákvörðun.“



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Vill kæra rangt verð til lögreglunnar
Vorþvottur bílsins
Veldu rétta hjólið fyrir þig
Reiknaðu muninn á húsnæðisláni á Íslandi og í Evruríki
Grænmeti og annað góðmeti á grillið
