ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Franskt kók í verslunum N1

Íslenska kókið er ekki að hverfa af markaði
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
18:10 › 13. janúar 2012
Það þarf enginn að örvænta, það er enn hægt að fá íslenskt kók

Það þarf enginn að örvænta, það er enn hægt að fá íslenskt kók Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Einhverjir hafa vafalaust rekið augun í það að erlendar Coca-cola flöskur eru í umferð hérlendis og voru margir byrjaðir að boða brotthvarf íslenska kóksins. Svo er ekki raunin, heldur hefur fyrirtækið N1 hafið innflutning á kóki frá Frakklandi. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1 segir þetta vera til að þrýsta á lægra innkaupaverð frá Vífilfelli.

„Við erum að þrýsta á um betra innkaupsverð,“ segir Hermann. „Við tókum bara sendingar af rauðu kóki og ekkert annað og gátum flutt það inn á lægra verði en íslenska verksmiðjan er að selja hér. Við gripum til þessa ráðs vegna þess að við höfum álitið að miðað við okkar stærð á markaði þá höfum við ekki fengið nægilega gott innkaupsverð hjá framleiðandanum,“ segir Hermann. Það er því helst til ótímabært að kveðja íslenska kókið.

Hermann segir að viðskiptavini stöðva N1 hafi orðið rokið í rogastans og ekki skilið hvers vegna flöskurnar voru svo skrítnar, en flöskurnar eru öðruvísi í laginu. „Svona bara virkar samkeppnin, það þarf að breyta því sem hægt er til að knýja á breytingar,“ segir hann og segir að samningar séu nú í vinnslu.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?