Margir hlakka til þess að hlýna fari í veðri en spáin fyrir næstu daga gefur til kynna leysingar. Eftir langvarandi snjóa og frostakafla þurfa húsráðendur að þurfa að gera ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir vatnstjón. Hlýnandi veður eftir snjó og frostakafla þýðir að vatn safnast fyrir og þegar það gerist verða niðurföll að vera hrein til þess að taka við vatninu. Flest tjón við þessar aðstæður má rekja til þess að ekki var mokað frá niðurföllum, snjór hreinsaður af þökum og svölum. Reynslan sýnir að allt of mörg vatnstjón hefði verið hægt að fyrirbyggja.
Sjóvá hefur því sent frá sér hollráð til þess að húseigendur geti varist tjóni.
Þetta getur þú gert:
Heimili:
Vertu viss um að vatn eigi greiða leið að niðurföllum
Brjótið klaka við niðurföll og mokið snjó frá niðurföllum
Hreinsaðu sand og lauf frá niðurföllum
Hreinsaðu snjó af svölum, en gættu þess að hvorki bílar né fólk sé fyrir neðan
Losaðu klaka og grýlukerti úr þakrennum og af þakskeggi
Í við niðurgang í kjallara og við glugga og veggi á neðri hæð gæti þurft að moka snjó frá.
Fyrirtæki:
Farðu yfir hvort vatns- og hitalagnir virka eðlilega
Þar sem ekki er dagleg starfsemi í húsnæði er mælt með því að eigendur fari yfir húsnæði og umhverfi til að koma í veg fyrir vatnstjón
Sumarhús:
Eftir langa frostakafla þá þarf að huga að vatnslögnum sumarhúsa
Vatn getur frosið í leiðslum og þegar það hlýnar þá er hætta á vatnstjóni vegna frostsprunginna lagna.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Vill kæra rangt verð til lögreglunnar
Vorþvottur bílsins
Veldu rétta hjólið fyrir þig
Reiknaðu muninn á húsnæðisláni á Íslandi og í Evruríki
Grænmeti og annað góðmeti á grillið
