Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er einn þeirra sem hafa ákveðið að taka mataræði sitt í gegn.
Það var alkunna að Clinton var mikill sælkeri og hafði dálæti á skyndibitum og annarri óhollustu. Hann barðist við aukakílóin í mörg ár en þegar hann var hætt kominn vegna hjartaáfalls fyrir nokkrum árum ákvað hann að taka mataræði sitt í gegn og gerðist grænmetisæta.
Í samtali við CNN í ágúst síðastliðnum sagði hann að líf hans hefði í raun verið rússnesk rúlletta. „Þó ég hafi veri búinn að breyta mataræðinu og minnka kólesterólið hef ég greinilega neytt of mikils af því, annars hefði ég ekki fengið hjartaáfallið.“ Það hefði verið þá sem hann gerði sér grein fyrir því að hann yrði að grípa til róttækra breytinga. Hann hefði því stuðst við The China Study og borðar núna hvorki kjöt, mjólkurvörur né egg.
The China Study er bók byggð á rannsókninni The China-Cornell-Oxford Project en þar var dánartíðni, mataræði og lífsstíll 6.500 Kínverja skoðaður en rannsóknin spannaði 20 ára tímabil. Að rannsókninni stóðu Oxford-háskólinn í Bretlandi, Cornell-háskólinn í Bandaríkjunum og Chinese Academy of Preventive Medicine í Kína.
Niðurstöðurnar voru þær að þeir sem borða mikið af kjöti og öðrum dýraafurðum voru mun líklegri til að fá langvarandi sjúkdóma en þeir sem borðuðu einungis mat úr plönturíkinu. Síðarnefndi hópurinn sneiðir hjá dýraafurðum svo sem kjöti, fiski, eggjum, osti og mjólk en með því minnka þeir eða jafnvel snúa við þróun langvinnra sjúkdóma. Niðurstöður rannsóknarinnar benda þannig til að marga langvinna sjúkdóma megi rekja til vesturlandavæðingar en á Vesturlöndum eykst neysla dýrapróteina og mjólkurafurða sífellt. Það eru matarvenjur sem hafa aldrei tíðkast í Kína eða eru afar óalgengar.
Í kjölfar rannsóknarinnar gáfu feðgarnir og læknarnir T. Colin Campbell og Thomas M. Campbell II út bókina The China Study. Þar er skoðað sambandið á milli neyslu á dýraafurðum og sjúkdóma, svo sem ýmiss konar krabbameina, sykursýki, hjartasjúkdóma, offitu, beinþynningar og heilahrörnunarsjúkdóma.
Clinton segir frá breyttum lífsstíl



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Vill kæra rangt verð til lögreglunnar
Vorþvottur bílsins
Veldu rétta hjólið fyrir þig
Reiknaðu muninn á húsnæðisláni á Íslandi og í Evruríki
Grænmeti og annað góðmeti á grillið
