ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Mataræði gegn krabbameini

Bragð í baráttunni
Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is
18:06 › 10. janúar 2012
Mataræði er mikilvægt í baráttunni við ýmsa langvinna sjúkdóma.

Mataræði er mikilvægt í baráttunni við ýmsa langvinna sjúkdóma.

  • Hinrik Greipsson, formaður Framfarar

    Hinrik Greipsson, formaður Framfarar

Nú er sá árstími þegar landsmenn eru uppteknir af heilsu og hollara líferni í kjölfar hátíðanna. Það er ekki einungis heilsuræktin sem fólk ætti að huga að því mataræði hefur gífurleg áhrif. Ekki einungis á holdafar heldur heilsuna almennt.

Um 30 prósent af orsökum krabbameins má rekja til slæmra matarvenja en það er jafnhátt hlutfall og má rekja til reykinga. Rannsóknir á orsökum þessa erfiða sjúkdóms benda því til að það sem þú setur á diskinn þinn hafi mikil áhrif á það hvort þú fáir krabbamein eða ekki og þar eru unnar kjötvörur taldar vera aðalskaðvaldurinn.

Árið 2009 kom út hér á landi bókin Bragð í baráttunni – matur gegn krabbameini, en hún var gefin út í samvinnu við Krabbameinsfélagið Framför. Hinrik Greipsson er formaður Farmfarar og hann segir bókinni hafa veri vel tekið og að hún hafi selst vel. „Mér skilst það sé erfitt að nálgast hana núna en við gátum, með fjárstuðningi frá nokkrum aðilum, keypt eintök til að gefa öllum almenningsbókasöfnum í landinu og öllum heimilislæknum í landinu.

Aðspurður hvort honum finnist nægilega mikið rætt um mikilvægi holls mataræðis í sambandi við krabbamein og aðra langvinna sjúkdóma segir Hinrik að svo sé ekki. Eins finnst honum mikilvægt að fólk geti keypt grænmeti á viðráðanlegu verði. „Grænmetisbændur fá niðurgreitt rafmagn að einhverju leyti. Þeir hafa ekki fengið þennan stórnotendataxta, að mér vitandi, en mér finnst það skipta afar miklu máli að þeir fái niðurgreidda orkuna. Bara það að fólk gangi fram hjá grænmetinu því það er svo dýrt, gefur ástæðu til að framleiða þetta á viðráðanlegu verði. Þó svo almenningur sé látinn borga það að einhverju leyti með sköttum, þá mun það tvímælalaust skila sér í betri heilsu og minni kostnaði í heilbrigðiskerfinu.“

Hann segir einnig að þrátt fyrir að bændur fái niðurgreidda orkuna séu milljarðar lagðir í mjólkur- og kjötframleiðslu. „Það þyrfti að breyta því aðeins og stýra þessu á heilsusamlegri hátt. Við þurfum að fá fólk til að borða meira grænmeti því það er vitað að grænmeti, og sérstaklega sumar tegundir þess, eru með andoxunarefni sem vinna gegn krabbameinsfrumum. Það er óeðlilegt að fólk hafi ekki efni á að borða grænmeti,“ segir hann.

Hinrik segist ekki vera öfgafullur þegar kemur að mataræði og finnst ekki endilega að fólk þurfi einungis að borða úr plönturíkinu. Hann telji blandað fæði vera best og fólk þurfi að finna hinn gullna meðalveg hvað mataræðið varðar.

Meira »



Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?