ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Drekkur mjólk úr hryssum

Hún líkist móðurmjólkinni og er full af vítamínum og næringarefnum
Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is
06:30 › 10. janúar 2012
Hekla ásamt hryssunum Ronju og Villimey.

Hekla ásamt hryssunum Ronju og Villimey.

  • Hermundur sést hér við mjaltir.

    Hermundur sést hér við mjaltir.

„Kaplamjólkin er heilsubætandi og allra meina bót og við höfum gert þetta í þrjú ár,“ segir Hekla Hermundsdóttir hestafræðingur en hún og faðir hennar, Hermundur Jörgensson, hafa mjólkað hryssur í þrjú ár á bænum Ásmundarstöðum í Ásahreppi.

Full af D-vítamíni
Kaplamjólk er líkust móðurmjólkinni í samsetningu og hefur hátt hlutfall af D-vítamíni. Hekla segir fólk sem sé haldið húðsjúkdómum og meltingarfærasjúkdómum nota mjólkina aðallega. Hún hafi verið gefin ungbörnum í gamla daga og líklega bjargað mörgum þeirra. „Þetta er gömul hefð sem var notuð hér í gamla daga en erlendis er þetta ennþá þekkt.“
Aðspurð hvort þau hafi sannreynt ágæti mjólkurinnar játar Hekla því og segir að þau hafi drukkið hana frá 2009. „Það er mikil næring í henni og svo er hún svo góð fyrir andlega líðan. Hún hreinsar líkamann og er mun betri en mig hefði grunað.“

Meira »



Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?