Sumar verslanir byrjuðu með útsölur strax eftir jólin. Neytendur geta gert góð kaup en gott er að hafa vaðið fyrir neðan sig. Mynd: DV
Það er margt sem neytendur þurfa að varast þegar kemur að útsölum. Mikilvægt er fyrir neytendur að þekkja sinn rétt og þær reglur sem gilda um útsölur.
Í úttekt DV á útsölum er farið yfir margt sem þarf að hafa í huga þegar gera á góð kaup nú þegar verslanir fara í auknum mæli að bjóða vörur á niðursettu verði.
Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri neytendaréttarsviðs hjá Neytendastofu, tók saman nokkra punkta sem tengjast viðbrögðum fólks þegar útsölur eru auglýstar.
1. Vara sem er auglýst á útsölu verður að hafa verið seld á tilgreindu fyrra verði áður. Það má því ekki setja vöru á útsölu eða tilboð nema um raunverulegan afslátt sé að ræða.
2. Mikilvægt er að horfa ekki eingöngu á prósentuafsláttinn heldur verðið líka.
3. Mikilvægt er að vanda valið því skila- og skiptireglur gilda almennt ekki á útsölum.
4. Mikilvægt er að athuga hvort réttur afsláttur skili sér þegar komið er að því að borga?
5. Vara má ekki vera á útsölu lengur en í sex vikur. Eftir það er útsöluverðið venjulegt verð.
Reglur um útsölur
Neytendasamtökin minna neytendur á reglur sem fyrirtæki verða að fylgja við útsölur. Ein þeirra er að ef vara er auglýst á tilboði eða útsölu verður hún að hafa verið í boði á „venjulegu“ verði áður. Ekki má skella tilboðsmiða á vöru nema um raunverulegt tilboð sé að ræða.
„Ef vara hefur verið seld á lækkuðu verði í sex vikur má ekki lengur tala um lækkað verð eða afslátt. Ef seljandi auglýsir lækkað verð verður hann að geta sýnt fram á að verðið hafi verið hærra áður. Ekki má tala um rýmingarsölu nema að verslun hætti eða að sölu á ákveðnum vöruflokki sé hætt,“ segir á ns.is. Enn fremur segir að ekki megi nota orð eins og gjöf eða ókeypis þegar kaupauki fylgi vöru.
Sjá einnig:
Gerðu góð kaup!



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Vill kæra rangt verð til lögreglunnar
Vorþvottur bílsins
Veldu rétta hjólið fyrir þig
Reiknaðu muninn á húsnæðisláni á Íslandi og í Evruríki
Grænmeti og annað góðmeti á grillið
