ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 7m/s S

Bíllinn pikkfastur í stæði og þarf að borga í stöðumæli

Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
16:00 › 29. desember 2011
Það voru margir í vanda í dag

Það voru margir í vanda í dag Mynd: Eyþór Árnason

Íbúar höfuðborgarsvæðisins þurftu velflestir að moka vel frá bílum sínum í morgun enda hefur ekki snjóað svona mikið á einum degi í desember í mörg ár. Einn lesandi DV sem staddur er á Vesturgötunni í Reykjavík var svo óheppinn að bíll hans er fastur í snjófargi og kemst hvergi. Hann er enn óheppnari þar sem bílnum er lagt við gjaldskyldu og hann þarf því að greiða fyrir daginn. Hann hafði samband við Reykjavíkurborg til að spyrjast fyrir um þetta en fékk þau svör að allir bílar sem ekki greiða fyrir stæði verði sektaðir venju samkvæmt. „Ég hringdi í Bílastæðasjóð Reykjavíkur og ræddi við yfirmann þar á bæ sem sýndi málinu alls engan skilning og tjáði mér að allir sem eru fastir í bílastæðum sínum í miðbænum í dag og greiða ekki fyrir hverja einustu mínútu verði sektaðir,“ segir hann. Hann segir Stöðumælasjóð frekar líkjast sértrúarsöfnuði fremur en sektarsjóði. „Það er eitthvað mikið að hjá þessu fyrirtæki, ef fyrirtæki skyldi kalla-þetta líkist meira sértrúarsöfnuði sem sektar.“

Bílastæðasjóður segir að dagurinn í dag sé ósköp venjulegur dagur og því gjaldskylda í öll stæði miðborgarinnar. Mikið álag er á símkerfi Reykjavíkurborgar, sem hefur vart annað því að svara borgarbúum í vanda.





Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?