ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

„Aðdáendur okurlána“

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
10:42 › 9. mars 2010

„Samtökin hvetja því fólk til að vera á varðbergi og vara eindregið við töku þessara lána. Þá lýsa samtökin undrun sinni á því að Hraðpeningum hafi tekist að safna hátt í 15.000 aðdáendum á Facebook, en samtökin hafa hingað til ekki heyrt frá aðdáendum okurlánastarfsemi af þessu tagi,“ segir á heimasíðu Neytendasamtakanna.

Hraðpeningar er nýtt fyrirtæki sem veitir svipuð lán og smálánafyrirtækið Kredia. Lánastarfsemin byggir á því að lána allt að 40 þúsund krónur til tveggja vikna. Upphæðin er svo innheimt með 25 prósenta vöxtum. „Þjónustan er ekki hugsuð sem lausn fyrir fólk í fjárhagsvandræðum heldur sem lausn fyrir fólk sem tilbúið er að greiða þjónustugjald fyrir aukin þægindi. Við stuðlum að heilbrigðri notkun og ýtum undir að viðskiptavinir okkar sýni skynsemi,“ segir á heimasíðu Hraðpeninga.

Neytendasamtökunum reiknast til að á ársgrundvelli nemi kostnaðurinn við lánin allt að 600 prósentum. „Á hverjum degi fá Neytendasamtökin athugasemdir um starfsemi þessara okurlánafyrirtækja, ýmist ábendingar frá almenningi eða reynslusögur frá reiðum lántakendum og/eða aðstandendum þeirra,“ segir á heimasíðu samtakanna en þau hafa hvatt stjórnvöld til aðgerða sem sporni við lánveitingum af þessu tagi, enda hafi bæði efnahags- og viðskiptaráðherra og félags- og tryggingamálaráðherra lýst yfir áhyggjum sínum af þessum smálánum. „Samtökin hvetja þá til að láta ekki staðar numið við þær yfirlýsingar heldur grípa til aðgerða er komi í veg fyrir veitingu SMS-lána en SMS-lánin hafa t.a.m. komið illa niður á ungu fólki í nágrannalöndum okkar.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.