Hefur þú keypt fullan poka af girnilegum ávöxtum sem reyndust síðan meira og minna óætir þegar heim var komið? DV leitaði til þekkingarfyrirtækisins Matís og til Banana ehf., eins stærsta innflutningsfyrirtækis landsins, og fékk upplýsingar um það hvernig velja skuli ávexti þannig að þeir séu bæði bragðgóðir og safaríkir. Einfaldasta reglan til að fá góða ávexti er að velja þá ávexti sem eru þyngri en þeir virðast vera.
Vatnsmelónur
Góð og nægjanlega þroskuð melóna gefur aðeins eftir þegar þrýst er á endana, sérstaklega þeim megin sem hún hefur hangið. Ef melónan er glerhörð þá er hún óþroskuð og ekki eins bragðgóð. Einnig má heyra hvort melóna er fullþroskuð með því að banka laust í skelina. Ef hljómurinn er holur þá er melónan tilbúin til átu.
Besti árstími: Svipaðar allt árið en spænsku melónurnar (þær sem koma á sumrin) þykja bestar.
Gular melónur
Lyktaðu af gulri melónu þeim megin sem hún var slitin af. Ef melónulyktin er greinileg þá er hún tilbúin til átu. Ef engin lykt finnst þá er hún ekki nógu þroskuð.
Besti árstími: Svipaðar allt árið en spænsku melónurnar (þær sem koma á snemma á sumrin) þykja bestar.
Ferskjur og nektarínur
Ferskjur geymast skemur en nektarínur og eru mjög viðkvæmar. Uppskeran er á sumrin og það er besti tíminn til að flytja þær inn; á meðan þær eru nýjar. Ferskjur eru þó fáanlegar allt árið á Íslandi en eru mjög misjafnar að gæðum yfir vetrartímann. Ferskleiki ferskjanna sést á því hvort hýðið er krumpað eða ekki.
Besti árstími: Sumar og haust.
Appelsínur
Appelsínur, klementínur og mandarínur eru súrastar í byrjun vetrar þegar þær byrja að koma frá Spáni (október eða nóvember) og svo snemma á sumrin (maí, júní) þegar þær koma frá Suður-Afríku og Argentínu. Þumalputtareglan er samt sú að eftir því sem „naflinn“ er stærri því sætari er ávöxturinn. Veljið stinnar appelsínur en brúnir blettir á appelsínum eru oft til marks um gæði. Enn fremur er appelsínan safarík ef hún er þyngri en hún lítur út fyrir að vera. Appelsínur má geyma í ísskáp svo vikum skiptir en hendið þeim strax ef þær eru farnar að skemmast.
Besti árstími: Síðla vetrar eða seint á sumrin, þá eru þær sætastar.
Perur
Þreyfið á perunni við stilkinn. Ef hún er mjúk þá er hún mjög þroskuð en ef hún er græn og mjög stinn þá er gott að geyma hana aðeins við stofuhita. Smáar perur þroskast hraðar, en perur sem fást úti í búð eru yfirleitt lítið þroskaðar.
Epli
Veljið ávallt epli sem er með óskaddað hýði og engar sjáanlegar skemmdir. Handleikið eplið til að finna hvort það sé ekki stinnt. Ekki láta litinn á eplinu eingöngu ráða valinu þar sem eldrauð epli, með þykkt og vaxkennt hýði, geta verið mjölkennd og bragðlaus. Fyrsta sending af nýjum eplum frá Ameríku kemur til Íslands í nóvember en uppskeran er geymd við kjöraðstæður fram á vor, eftir því sem birgðir endast. Epli gefa frá sér vaxtarhormón sem gengur undir nafninu etýlen. Efnið getur flýtt fyrir þroskun á öðrum ávöxtum og grænmeti sem geymd eru í nánd við eplin, svo þau eru varhugaverðir nágrannar.
Besti árstími: Á haustin og til áramóta.
Ananas
Veljið ananas sem er þungur miðað við stærð og skæra liti. Til að kanna þroskastig er ágætt að toga létt í neðsta laufið og ef það er laust er ávöxturinn þroskaður. Forðist líflausan ananas þar sem blöðin eru farin að verða brún. Ananas geymist best við 10 gráður en það er ef til vill ekki auðvelt að finna það hitastig á heimlinu. Ananas sem er brúnn er orðinn verulega þroskaður en þarf ekki að vera ónýtur. Veljið grænleitan ananas frekar ef þið ætlið ekki að borða hann alveg strax.
Vínber
Þær tegundir vínberja sem ekki innihalda steina hafa oft bitrara bragð en þau ber sem í eru steinar. Hægt er að flokka þau í græn afbrigði, rauð eða fjólublá og muscat sem eru yfirleitt stór og rauð eða svört og afskaplega bragðgóð. Þar sem sum vínber eru seld óþroskuð er gott ráð að lauma einu upp í sig til að meta þroskastigið. Fullkomið berjaknippi ætti að samanstanda af berjum af sömu stærð, lögun og lit. Rauð knippi ættu ekki að innihalda grænleit ber. Geymast í kæli í plastpoka en fjarlægið skemmd ber strax. Rauðu vínberin eru nær aldrei súr en þau grænu, sem hafa hvanngrænan lit, geta verið það. Grænu vínberin eru ekki endilega ónýt þótt brún slikja sé á þeim; þau eru eingungis sætari.
Besti árstími: Bestu berin eru í ágúst og september (frá Spáni og Grikklandi) og svo í janúar og febrúar (frá Suður-Afríku).
Kíví
Kíví er ávöxtur sem best er að kaupa nokkuð stinnan, með óskemmt hýði. Kíví þroskast hratt við stofuhita heima við en geymist í margar vikur í kæli. Á Íslandi fæst kíví aðallega frá Ítalíu og Chile en ítalskt kíví er mýkra. Ef kíví er hart er það yfirleitt merki um að ávöxturinn sé óþroskaður.
Bananar
Þeir eru skornir frá móðurplöntu óþroskaðir og fluttir þannig milli landa. Á áfangastað eru þeir geymdir í etýlen-blönduðu lofti sem flýtir fyrir þroska þeirra. Veljið banana sem eru ekki marðir eða of grænir. Bananar sem eru gráleitir hafa líklega lent í of miklum kulda og ná því aldrei að verða fagurgulir. Þeir sem eru enn með græna enda eru harðari og bragðmeiri en þegar þeir eru fullþroskaðir. Þó svo að bananar séu komnir yfir það þroskastig sem hentar til átu, þá er alveg upplagt að nota þá þannig í ýmsa rétti og í brauð og kökur. Geymið banana við stofuhita en þó ekki úti í glugga þegar von er á sól. Aldrei setja banana í kæli því þá verða þeir aldrei gulir; aðeins brúnir eða gráleitir.
Greip
Greip er til í fjölmörgum afbrigðum og er yfirleitt hægt að miða við það að greipávöxturinn er sætari eftir því sem kjötið er rauðara. Veljið greip sem virkar þungt miðað við stærð, hýðið er misþykkt eftir afbrigðum og ætti að vera þétt. Hægt að geyma greip í ísskáp en það mun ekki þroskast meira, þrátt fyrir góðan ásetning þinn. Ávextirnir með þynnsta hýðinu eru safaríkastir.
Avókadó
Á Íslandi fást tvær tegundir af avókadói; hefðbundið avókadó og svokallað hass-avókadó sem stundum hefur brúnan eða fjólubláan og hrjúfan börk. Það þýðir ekki að ávöxturinn sé ónýtur. Þvert á móti bragðast hann yfirleitt betur en sá sem er með grænum og sléttum berki. Avókadó kemur oftast frá Ísrael, Spáni eða Perú.
Besti árstími: Síðla hausts og á sumrin.
Jarðarber
Best er að smakka ber áður en þau eru keypt en það er ekki alltaf vel séð eða mögulegt. Ef jarðarber eru grænleit eru þau stíf og óþroskuð. Ber (til dæmis jarðarber, brómber, bláber) geymast best við 0 gráður, þá geymast þau allt að þrisvar sinnum lengur en við ísskápshita. Ef þú átt ekki ísskáp með köldu svæði skaltu skola berin og setja þau í sigti inn í kæli. Þar geymast þau betur en ber geymast almennt frekar illa.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Leigubílstjórar gefa sparnaðarráð
Hlauptu í klukkutíma til að brenna þessu
Býr til ferðina í kringum Londonmiðann
Ódýrari sólarferðir á netinu
Broskarl táknar gæði