Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Neytendasamtökin ráðleggja fólki að setja fyrirvara við afborganir af myntkörfulánum, sem héraðsdómur dæmdi á dögunum að væru ólögleg. Áður en niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir ætti fólk sem hyggst nýta sér myntbreytingu, frystingu eða höfuðstólslækkun lána að setja fyrirvara þegar afborganir eru greiddar.
„Til að auðvelda sönnun er nauðsynlegt að tilkynna lánveitanda um fyrirvarann með skriflegum hætti, t.d. með tölvupósti eða bréflega, ásamt því að bæta fyrirvaranum á greiðsluseðilinn. Orðalag fyrirvarans gæti verið á þessa leið: Greitt með fyrirvara um lögmæti lánsins,“ segja samtökin.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Leigubílstjórar gefa sparnaðarráð
Hlauptu í klukkutíma til að brenna þessu
Býr til ferðina í kringum Londonmiðann
Ódýrari sólarferðir á netinu
Broskarl táknar gæði