ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Rándýrt sælgæti

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
19:23 › 2. mars 2010

Neytendasamtökin könnuðu verð á sælgæti og drykkjarföngum í nokkrum leikhúsum og tónleikasölum. Gos í gleri er ódýrast í Háskólabíói og hjá Leikfélagi Akureyrar. Þar kostar flaskan 250 krónur en hún kostar 400 krónur í Borgarleikhúsinu. Bjórflaska er einnig ódýrust hjá Leikfélagi Akureyrar, kostar 650 krónur. Hún er dýrust í Borgarleikhúsinu og kostar 850 krónur.

Í könnuninni kom í ljós að Nissa-súkkulaði kostar 250 krónur í Borgarleikhúsinu, í Háskólabíói, í Íslensku óperunni, hjá Leikfélagi Akureyrar og í Þjóðleikhúsinu. Ópal og Tópas kosta jafnmikið nema í Háskólabíói þar sem pakkinn kostar „ekki nema“ 200 krónur. Lakkrískonfekt í poka kostar á bilinu 300 til 250 krónur, þar sem það fæs



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.