Öll vara og þjónusta er nú að jafnaði þriðjungi dýrari en í febrúar 2007, þegar allt lék í lyndi, og kaupmáttur hefur rýrnað hratt. Þess vegna hefur líklega aldrei verið mikilvægara að spara en einmitt nú. DV hefur tekið saman 22 leiðir til að skera niður útgjöld heimilisins. Hafa skal hugfast að leiðirnar eru háðar fyrir fram gefnum forsendum um neyslumynstur en þeir sem fylgja þeim í hörgul geta sparað eina milljón króna á ári.
Skiptu safanum út
Árlegur sparnaður: 55.000 kr.
Áætla má að fjögurra manna fjölskylda sem drekkur ávaxtasafa með matnum drekki um 1 lítra með hverri máltíð. Ef fjölskyldan ákveður að skipta safanum út fyrir vatn, eina máltíð á dag, má gera ráð fyrir því að hún spari um 55 þúsund krónur á ári, miðað við að lítrinn kosti um 150 krónur. Ekki má gleyma því að vatnið er mikið hollara. Í 100 grömmum af hreinum ávaxtasafa eru yfirleitt um 10 til 12 grömm af kolvetnum/sykri.
Gerðu innkaupalista
Árlegur sparnaður: 96.000 kr.
Rannsóknir sýna að þeir sem útbúa innkaupalista áður en þeir halda í búðina geta auðveldlega sparað 10 prósent í matarútgjöld á mánuði. Þeir sem verðlauna sig fyrir að halda sig við listann, með því að kaupa einhvern óþarfa við kassann, spara ekki eins mikið. Fjölskylda sem ver 80 þúsund krónum í mat á mánuði getur þannig sparað 8 þúsund á mánuði eða 96 þúsund krónur á ári. Það munar um minna.
Hugsaðu þig tvisvar um
Að langa í er ekki það sama og að vanta. Margir kannast eflaust við að vera komnir með eitthvað í hendurnar sem þá vantar ekki en langar mikið í. Legðu hlutinn frá þér, ef hann kostar mikið, og semdu við sjálfa/n þig um að kaupa hann ekki fyrr en að vandlega íhuguðu máli. Farðu heim og spurðu þig hvort þig vanti hlutinn og hversu mikið þú munir nota hann. Ef þig langar enn í hann eftir tvo til þrjá daga skaltu láta það eftir þér, svo fremi sem það setur þig ekki á hausinn. Ef þú gleymir hlutnum er ekki líklegt að þú þurfir mikið á honum að halda.
Eldaðu ríflega
Árlegur sparnaður: 208.000 kr.
Hagkvæmara er að elda fyrir fleiri en færri. Þess vegna getur hádegisverður, hjá fjögurra manna fjölskyldu sem hittist ekki í hádeginu, verið umtalsvert dýrari en kvöldverðurinn, þar sem allir borða saman. Áætla má að fjórar stakar máltíðir (handa tveimur fullorðnum og tveimur börnum) kosti um þrjú þúsund krónur ef maturinn er keyptur úti í bæ. Auðveldlega má elda góða máltíð handa fjórum fyrir 1.500 krónur, ef keypt er inn af hagsýni. Með því að bæta 1.000 krónum við má jafnvel elda tvöfalt það magn sem fjölskyldan þarf. Þá geta allir tekið með sér afgang morguninn eftir, til að borða í hádeginu. Fjölskylda sem gerir þetta tvisvar í viku getur sparað 4.000 krónur á viku, eða rúmlega 200 þúsund krónur á ársgrundvelli.
Veldu ódýrari bjór
Árlegur sparnaður: 14.260 kr.
Betri bjórtegundir kosta um 350 krónur í vínbúðum landsins, sé hálfur lítri valinn. Ódýrasti bjórinn, Bavaria, kostar 235 krónur sem er svipað og Fosters. Meðal bjórdrykkja Íslendinga er 62 lítrar á mann á ári. Sá sem vill ekki draga úr bjórdrykkju en getur hugsað sér að skipta um tegund getur sparað 14.260 krónur á ári með því að velja ódýrasta bjórinn.
Láttu fjölskyldumeðlim klippa þig
Árlegur sparnaður: 26.000 kr.
Herraklipping kostar að jafnaði, samkvæmt Hagstofu Íslands, 3.832 krónur. Karlmaður sem lætur klippa sig átta sinnum á ári greiðir þannig um 30 þúsund krónur á ári. Þokkalegt hársnyrtisett, með skærum og lítilli rakvél kostar á við eina ferð á hárgreiðslustofu. Þannig getur sá sem treystir ófaglærðum einstaklingi til að klippa sig sparað 26 þúsund krónur fyrsta árið.
Slepptu gosinu
Árlegur sparnaður: 54.750 kr.
Algengt verð á hálfs lítra gosflösku er 150 krónur. Ef fjögurra manna fjölskylda kaupir að jafnaði eina litla flösku á dag nemur kostnaðurinn 55 þúsund krónum á ári. Kostnaðurinn nemur 110 þúsund krónum ef tvær 0,5 lítra flöskur eru keyptar daglega.
Kauptu nammi á laugardögum
Sumir kaupa sér sælgæti á hverjum degi. Sá sem kaupir sér súkkulaðistykki og hálfan lítra af gosi á dag eyðir 109.500 krónum í þann munað á ári, miðað við að hvort um sig kosti að jafnaði 150 krónur. Á laugardögum er víðast hvar helmingsafsláttur af sælgæti í lausasölu. Þann dag er tilvalið að svala nammiþörfinni. Sparnaðurinn nemur tugum þúsunda króna á ársgrundvelli. Þess utan skemmir sífellt sælgætisnart tennur og er slæmt fyrir þá sem glíma við ofþyngd. Sparnaðurinn með því að hafa einn nammidag í viku getur því verið margfaldur þegar slíkir þættir eru teknir með í reikninginn.
Segðu upp áskriftum
Árlegur sparnaður: 80.000 kr.
Þó að Stöð 2 geti verið skemmtileg á að horfa flokkast áskrift að henni, rétt eins og áskrift að öðrum sjónvarpsstöðvum, tímaritum, dagblöðum og vefsíðum, undir eitthvað sem hægt er að komast af án. Samkvæmt Hagstofu Íslands kostar áskrift að Stöð 2 um 80 þúsund krónur á ársgrundvelli. Það er þó misjafnt eftir því hvort þú kaupir aðra þjónustu með eða hvort stakir mánuðir eru keyptir.
Skipuleggðu þig
Árlegur sparnaður: 32.000 kr.
Ert þú ein/n af þeim sem skýst út í búð eftir kartöflum, rjóma eða einhverju sem vantar í matinn? Slíkar ferðir geta verið dýrar. Ef þú þarft að aka 10 kílómetra þrisvar í viku (5 km hvora leið) eftir matvælum eða öðru sem þú gleymdir að kaupa, þá eyðir þú 32 þúsund krónum í bensín vegna skottúra á ári. Þetta miðast við að bíllinn eyði 10 lítrum á hundraði en við bætist kostnaður vegna hærri álagningar verslana sem opnar eru lengur.
Kauptu skeggsnyrti
Árlegur sparnaður: 12.3000 - 18.300 kr.
Fimm Gillette-rakvélablöð í pakka kosta gjarnan um 3.200 krónur. Stundum töluvert meira. Sá sem kaupir rakvélablöð annan hvern mánuð greiðir þannig 19.300 krónur á ári. Þá eru aukahlutir eins og rakkrem, raksápa og bursti ótaldir. Í Elko má til dæmis kaupa skeggsnyrti á um 6.000 krónur. Hann getur enst árum saman og komið í veg fyrir mikil útgjöld svo fremi sem þú sættir þig við að hafa smá skeggrót.
Veldu Nivea og 8x4
Árlegur sparnaður: 18.000 kr.
Miklar fjárhæðir má spara þegar kemur að snyrtivörum en hlutlausar rannsóknir sýna að yfirleitt er engin fylgni á milli gæða og verðs snyrtivaranna. Andlitskrem og svitalyktareyðar í dýrum merkjum kosta oft á bilinu 4.000 til 7.000 krónur. Sá sem kaupir tvö eintök af hvoru á ári ver á að giska um 22 þúsund krónum í þessar vörur. Í lágvöruverðsverslunum má kaupa stóra dós af Nivea-rakakremi og 8x4-svitalyktareyði á brot af því sem dýru merkin kosta. Sparnaðurinn getur numið um 18 þúsund krónum á ári.
Fáðu þér vespu
Árlegur sparnaður: 96.000 kr.
Ef þú vilt ekki ferðast á tveimur jafnfljótum getur vespa verið lausnin fyrir þig. Margar vespur eyða í kringum 1 l/100 km. Sá sem vinnur fimm daga vikunnar og býr í 10 kílómetra fjarlægð frá vinnustað keyrir 5.200 kílómetra á ári. Sá sem á bíl sem eyðir 10 lítrum á hundraði greiðir 106 þúsund krónur á ári til að komast til og frá vinnu. Með því að eiga vespu getur þessi kostnaður lækkað um 96 þúsund krónur á ári, miðað við að hún eyði 1 lítra á hundraði. Vespan getur borgað sig upp á einu ári, þar sem hægt er að fá notaðar vespur frá 100 þúsund krónum.
Nýttu punktana
Punkta vegna veltu á kreditkortum getur þú ekki aðeins notað upp í sólarlandaferðir heldur getur þú keypt nytsamlega hluti og gjafir fyrir punktana. Á points.com er hægt að breyta punktunum í erlenda mynt og versla á erlendum vefsvæðum fyrir inneignina. Mundu að þeir fyrnast ef þú notar þá ekki.
Notaðu taubleiur
Árlegur sparnaður: 99.210 kr.
Þeir sem eignast börn ættu að velja taubleiur frekar en hefðbundnar pappírsbleiur. Þannig má spara rétt um 100 þúsund krónur á ári, miðað við að barn noti bleiur í þrjú ár. Taubleiur eru orðnar afar hentugar í notkun; þær má nota aftur og aftur án þess að fyrirhöfnin sé mikið meiri en hjá þeim sem nota pappírsbleiur. Á vefnum taubleiur.is má sjá nákvæma útreikninga um hvað hægt er að spara mikið á því að nota taubleiur. Sparnaðurinn nemur 99 þúsund krónum á ári, noti barnið bleyjurnar í þrjú ár.
Fáðu lánað
Árlegur sparnaður: 103.200 kr.
Samkvæmt neysluviðmiðun Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna þurfa hjón með tvö börn að gera ráð fyrir kostnaði upp á 17.200 krónur í hverjum mánuði til fatakaupa. Þessi tala er síst of há en miðað við hana nemur kostnaðurinn 206.000 krónum á ári. Vegna gengishruns krónunnar hefur fatnaður hækkað mikið í verði. Þess vegna ætti fólk að leggja sig fram við að fá föt lánuð hjá vinum og ættingjum, bæði á börn og fullorðna. Það er fyrirhafnarinnar virði. Börn eru fljót að vaxa upp úr fötunum og því eru þau sjaldnast ónýt þegar eitt barn hefur notað þau. Sá sem fær aðra hverja flík að láni hjá vinum eða ættingjum getur sparað sér ríflega 100 þúsund krónur á ári.
Drekktu heima
Árlegur sparnaður: 24.000 kr.
Hálfur lítri af bjór í vínbúð kostar oft um 300 krónur. Á veitingahúsi kostar bjórinn hins vegar 800 krónur. Sá sem hagar drykkju sinni þannig að hann drekkur fjóra bjóra í heimahúsi, sem hann hefði annars drukkið á veitingastað, sparar 2.000 krónur. Sá sem skemmtir sér með slíkum hætti einu sinni í mánuði sparar 24.000 krónur á ári.
Æfðu úti
Árlegur sparnaður: 35.000 kr.
Flestar æfingar er hægt að gera úti á einn eða annan hátt. Þar er hægt að hlaupa, hjóla, hoppa, sippa, gera armbeygjur, kviðæfingar og stunda hópíþróttir. Nú þegar hlýrri hluti ársins er fram undan ætti fólk sem vill spara frekar að æfa úti en að kaupa kort í líkamsrækt. Sex mánaða kort í ræktina kostar oft á bilinu 30 til 40 þúsund krónur. Sparaðu þér aurana; klífðu fjöll eða fáðu þér kröftugan göngutúr. Andaðu að þér fersku lofti nú þegar vorið og sumarið eru fram undan. Keyptu þér svo aftur kort í haust.
Leigðu bílinn þinn
Mánaðarlegur sparnaður: 45.000 kr.
Er bíllinn þinn yfirveðsettur og þú getur ekki selt hann? Eru afborganirnar að sliga þig? Auglýstu bílinn til leigu á Facebook. Ef það gengur ekki skaltu auglýsa víðar. Það eru alltaf einhverjir að leita sér að bíl sem vilja þó síður kaupa. Auðvelt er að gera samning um leigu á bílnum þannig að þú lendir ekki í vandræðum ef eitthvað kemur upp á. Sparnaðurinn getur numið 30 til 60 þúsund krónum á mánuði, eftir því hve dýrt þú getur leigt bílinn.
Verslaðu í Tiger
Keyptu ritföng, gjafakort, eldhúsáhöld, kerti og jafnvel krydd í Tiger. Þar er verðið yfirleitt meira en helmingi lægra en í verslunum sem sérhæfa sig í einhverju af þessu. Erfitt er að reikna út nákvæman sparnað en Tiger ætti alltaf að vera fyrsti valkostur ef þig vantar eitthvað á góðu verði, sem ekki fæst í lágvöruverðsverslunum. Reyndu að gera þér ekki sérstaka ferð til að kaupa hlutinn. Reyndu í það minnsta að nýta ferðina í eitthvað fleira.
Aktu bara þrjá daga
Árlegur sparnaður: 42.000 kr.
Sá sem skilur bílinn eftir heima tvo daga vikunnar og hjólar (eða fær far með öðrum) getur sparað sér tugi þúsunda á ári. Ef miðað er við að einstaklingur búi í 10 kílómetra fjarlægð frá vinnustað sparast 42 þúsund krónur á ári. Þetta miðast við að bíllinn eyði 10 lítrum á hverja hundrað kílómetra og að bensínlítrinn kosti 205 krónur, eins og hann gerir nú. Slit bílsins minnkar fyrir vikið sem nemur ríflega 2.000 kílómetra akstri.
Ekki láta blekkjast
Þegar þú íhugar að kaupa föt, heimilisbúnað eða annan varning skaltu ekki láta blekkjast af tilboðum eða auglýsingum um afslátt. Gott verð ræðst ekki af því hversu hár afslátturinn er heldur hvort hluturinn sé peninganna virði. Settu verð hlutarins í samhengi við hversu lengi þú þarft að vinna til að safna þér fyrir honum. Kostar hann laun fyrir tveggja stunda vinnu, heilan vinnudag eða kannski heila viku?





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Leigubílstjórar gefa sparnaðarráð
Hlauptu í klukkutíma til að brenna þessu
Býr til ferðina í kringum Londonmiðann
Ódýrari sólarferðir á netinu
Broskarl táknar gæði