Neytendastofa hefur bannað American Express að birta auglýsingar þar sem segir að viðskiptavinir fyrirtækisins safni vildarpunktum tvöfalt hraðar en þeir sem skipti við VISA. Neytendastofa segir í ákvörðun sinni að fyrirtækið hafi ekki getað sannað þá fullyrðingu né heldur að „Með Premium Icelandair American Express færðu bestu ferðatryggingu sem völ er á,“ eins og segi á vefsíðu fyrirtækisins. Því brjóti fyrirtækið gegn lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
Kreditkort, umboðsaðili American Express, stendur við öll efnisatriði í þeim auglýsingum sem Neytendastofa bannaði þeim að nota. Þetta segir í tilkynningu frá Kreditkortum. „Auglýsingunum var ætlað að varpa ljósi á þann mun sem er á söfnun vildarpunkta á Visa-kortum annars vegar og kortum American Express hins vegar [...] Ljóst er að skýringarnar hefðu mátt vera nákvæmari í þessum tilteknu auglýsingum. Birtingu þessara auglýsinga hefur nú verið hætt og Kreditkort mun gæta þess framvegis að taka tillit til þessara sjónarmiða,“ segir í tilkynningunni en þar er bent á að þremur af fimm umkvörtunarefnum samkeppnisaðilans Valitors hafi verið hafnað. Eftir standi að söfnun vildarpunkta á American Express-kortum sé hraðari en á nokkrum öðrum kortum á Íslandi.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Leigubílstjórar gefa sparnaðarráð
Hlauptu í klukkutíma til að brenna þessu
Býr til ferðina í kringum Londonmiðann
Ódýrari sólarferðir á netinu
Broskarl táknar gæði