ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

N1 rýfur 200 króna múrinn

Baldur Guðmundsson baldur@dv.is
18:40 › 27. febrúar 2010

Meðalmaður, sem ekur 18 þúsund kílómetra á ári á bíl sem eyðir 10 lítrum á hundraðið, getur gert ráð fyrir því að þurfa að borga nærri 370 þúsund krónur í bensín á þessu ári. Bensínið fór í fyrsta sinn yfir 200 krónur þegar N1 tilkynnti um fimm króna hækkun á bensín- og dísilolíulítranum á mánudaginn. Lítrinn kostar nú 204,20 krónur. Að fylla einn 50 lítra tank kostar því 10.200 krónur.

Hermann Gunnarsson, forstjóri N1, sagði í samtali við DV að hækkunin væri óhjákvæmileg. „Við vorum búnir að bíða í tæpa viku eftir að olíuverð lækkaði eða krónan styrktist. Það gerðist bara ekki og því þurftum við að hækka,“ sagði hann og benti á að tonnið af bensíni hefði hækkað um meira en 100 dollara á undanförnum tveimur vikum. Dollarinn hafi auk þess verið að styrkjast. Hann hafi farið úr 122 krónum í 129. „Nú er verðið 204 krónur en ég bendi á að þar af fara um 103 krónur beint til ríkisins,“ segir Hermann og bætir við að sú tala hafi fyrir örfáum misserum verið 73 krónur. Skattahækkanirnar hafi átt sinn þátt í hækkandi bensínverði.

Hann spáir frekari hækkunum á næstu mánuðum, þar sem heimsmarkaðsverð sé venjulega hærra á sumrin en á veturna. Hann bendir þó á að það sé hagur olíufyrirtækjanna að hafa verðið sem lægst. Þá fari fleiri lítrar í gegnum leiðslurnar og veltan sé meiri. „Eftir því sem verðið hækkar fækkar seldum lítrum,“ útskýrir hann og bætir við: „Þetta er hörmungarástand.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.