Bubba hótað lífláti

Bubbi Morthens segir frá ofsóknum á hendur sér af hálfu veikra einstaklinga. Einn taldi hann vera sáluhjálpara, annar taldi hann hafa stolið lögunum sínum og ætlaði að drepa hann fyrir vikið, sá þriðji vildi deila geðveikisórum sínum með honum og sendi honum morðvopn í pósti og sá fjórði taldi Bubba geta sært úr sér illan anda. Hann var eltur, legið var á glugganum hjá honum, hann var stunginn á sínu eigin heimili og börnunum hans var hótað lífláti. Bubbi segir frá reynslu sinni af eltihrellum.

Árið 1982 var vægast sagt viðburðaríkt ár í lífi Bubba. Þetta ár komu fyrsta og önnur plata Egó út. Sú fyrri var í öðru sæti yfir mest seldu plötur landsins og sú seinni í því fyrsta. Í kjölfar útgáfunnar fór bandið tvisvar í tónleikaferð um landið og þetta ár hitaði það tvisvar upp fyrir erlend bönd í Höllinni, Human League og reggí-sveitina Babatunde Tony Ellis. Rokk í Reykjavík kom út og Egó tók þátt í rokkhátíðunum Rokkhátíð ´82 og Risarokk í Höllinni. Bubbi lék fyllibyttu og smáglæpon í Skilaboðum til Söndru, spilaði með föngum á Hrauninu og var valinn vinsælasti textahöfundurinn í vinsældakosningu Dagblaðsins Vísis.

En þrátt fyrir mikla velgengni ríkti ekki eintóm gleði í lífi Bubba árið 1982. Þetta ár var hann nefnilega í fyrsta skipti ofsóttur af manni sem átti við alvarleg geðræn vandamál að stríða. „Ég hef oft lent í því að vera með „stalker“. En fjórir hafa gengið svo langt að það hefur verið einhver ástæða til þess að hafa áhyggjur af því.“

Krafðist þess að fá kredit

Sá fyrsti taldi Bubba hafa stolið af sér lögunum sínum. Fyrstu kynni Bubba af manninum voru þegar hann fékk bréf þar sem hann krafðist þess að Bubbi leiðrétti þetta fyrir þjóðinni. „Hann vildi að ég myndi viðurkenna það að hann ætti öll lögin mín, þar á meðal Ísbjarnarblús. Ég þurfti ekki að vita meira til þess að vita að maðurinn væri ekki í lagi. Ég vissi það um leið og ég fékk fyrsta bréfið frá honum. Það fór ekki á milli mála þegar hann fór að tala um það að hann hefði samið Ísbjarnarblús. Og ég hefði stolið laginu af honum. Fyrst datt mér í hug að hann væri kommúnisti. Ég vildi frekar trúa því. Svo kom í ljós að maðurinn var að meina þetta. Hann skrifaði meira að segja lesendabréf í Morgunblaðið sem fjallaði um það að hann ætti öll lögin mín og fékk það birt.“

Ítrekaðar líflátshótanir

Maðurinn hafði ítrekað samband við Bubba og sendi honum fjölmörg bréf. Bréfin urðu hvert öðru furðulegra. „Meiri geðveiki fór að einkenna þau og hann talaði um hluti sem áttu sér enga stoð í raunveruleikanum. Mjög skrýtna hluti.“

Bréfin fjölluðu meira og minna um það að hann ætlaði annaðhvort að drepa Bubba eða meiða hann ef hann fengi ekki kredit fyrir lögunum. Og hann var með alls kyns hugmyndir um það hvernig hann myndi gera það. Þegar þetta fór að ágerast talaði Bubbi við lögregluna en það var lítið hægt að gera. „Þetta var í raun orðin svo mikil geðveiki að það var ekki hægt að horfa fram hjá þessu lengur. Hann sendi mér ítrekað líflátshótanir og þetta var ofbeldishneigður maður. Eftir að hann réðst á gamlan mann og slasaði hann mjög illa var hann tekinn úr umferð og settur inn. Þá linnti ofsóknunum loksins. Það er enginn glaður þegar hann lendir í svona aðstæðum, en þetta var nú ekki það svæsnasta sem ég hef lent í.“

Sendi snöru

Nokkrir mánuðir liðu og allt lék í lyndi. Allt þar til næsti eltihrellir tók að ofsækja Bubba. Í þetta skiptið var það kona „... sem ákvað að deila með mér geðveikisórum sínum. Hún sendi mér bréf. Stundum var hún búin að klippa út stafi og raða þeim saman þannig að þeir mynduðu morðhótanir. Svo sendi hún mér snöru, byssukúlur og ösku í litlum líkkistum.“

Þetta gekk í einhvern tíma en eftir nokkra mánuði sagði Bubbi stopp, hingað og ekki lengra. „Ég náði til hennar þegar hún sat fyrir mér heima hjá mér. Þá tók ég fast á henni. Hún lét ekki af þessu en þetta minnkaði og með tímanum hætti þetta alveg.“

Börnin óttaslegin

Næsti maður sem ofsótti Bubba þjáðist af óbærilegri vanlíðan. Hann var sannfærður um að Bubbi gæti náð honum upp úr þessu og kom sér fyrir á tröppunum heima hjá honum þar sem hann svaf jafnvel. „Hann kom sér bara fyrir með plötubunkann á tröppunum hjá mér. Það var engin leið til að losna við hann. Börnin mín voru mjög hrædd við hann. En ég held að hann hafi ekki verið ofbeldishneigður. En það var mikil sorg í honum.“

Reyndi að vera góður

„Hann las eitthvað út úr tónlistinni minni. Hann vildi að ég myndi leysa hann frá sálarkvölunum og trúði því að ég gæti það. En ég átti engan möguleika á því. Ég reyndi að taka utan um hann en þáverandi eiginkona mín var náttúrulega ekki hrifin af því að ég væri að taka svona fólk inn á heimilið. Ég skil það alveg. En ég tók hann inn á heimilið mitt. Ef fólk grætur og er í uppnámi og allt þeirra líf er farið úr skorðum og það stendur í þeirri trú að ég geti hjálpað því þá skaðar ekki að vera góður við fólkið. Það skaðar engan að taka utan um manneskju sem líður illa og tala fallega til hennar.

Ég veit ekki hvort það varð til þess að ýta undir áreitnina, ég veit það ekki, en hann hélt allavega áfram að koma. Ég vildi bara vera almennilegur við hann. Oft á tíðum er það frábær leið til að takast á við svona aðstæður. En það eru kannski ekki allir með taugar til þess. Það er ekkert gaman að takast á við svona.“

Þetta ástand varði heilan vetur. En eftir veturinn fékk maðurinn hjálp og þá hvarf hann úr lífi Bubba. Bubbi hitti hann svo fjórum árum síðar og þá var maðurinn í lagi, bað hann afsökunar á hegðun sinni og þakkaði fyrir það hvernig Bubbi tæklaði hann á sínum tíma.

Hótaði börnunum

Öllu erfiðara reyndist að takast á við mann sem trúði því að Bubbi gæti sært út úr honum illan anda. „Hann var mjög erfiður. Hann hafði líka lesið eitthvað út úr lögunum mínum og var þess fullviss að ég gæti sært út úr honum illan anda. Ég benti honum á að fara niður í Kristskirkju því þar væru kaþólskir prestar sem hefðu heimild til þess að gera svona. En hann var mjög harður á því að ég ætti að gera þetta.“

Bubbi þvertók fyrir það og hélt áfram að benda manninum á Kristskirkju. Þá fóru honum að berast hótanir frá manninum. „Ég lét það ekki koma mér úr jafnvægi en þegar hann hótaði að skaða börnin mín fór ég í hann. Hann kom æðandi til mín alveg kolgeggjaður, froðufellandi og snarbrjálaður og hótaði börnunum mínum. Þá fór ég í hann. Ég lagðist þungt á hann og tók hann niður. Það er ekki gaman að þurfa að slást við svona menn en ég vissi ekki til hvers hann var vís.“

Skömmu síðar var maðurinn tekinn úr umferð og færður á viðeigandi stofnun þar sem hann fékk hjálp.

/b>Stunginn af óboðnum gesti

„Í grófum dráttum er þetta mín reynsla af stalkerum. En auðvitað er hvert dæmi sem ég tek hér aðeins brot af lengri sögu. Það er mjög erfitt að hafa svona fólk á eftir sér. Það er líka mjög erfitt að það er varla hægt að fá hjálp þegar maður lendir í þessum aðstæðum. Það hefur allavega reynst mér mjög erfitt. Það er ekki fyrr en maður verður fyrir skaða að eitthvað er gert. Ég var einu sinni stunginn með eggvopni á mínu eigin heimili. Þá fyrst kom lögreglan. Það var í eina skiptið sem hún hefur brugðist hratt og örugglega við.“

Bubbi var þá með gest heima hjá sér. Allt í einu var komin inn manneskja sem taldi sig eiga eitthvað óuppgert við gest Bubba. „Þessi manneskja kom óboðin inn til mín, var hleypt inn fyrir slysni. Hún var mjög ógnandi og lamdi frá sér. Þannig að ég tók ákvörðun um að fylgja henni út. Hún átti ekkert að vera þarna og ég var að reyna að koma henni út. Okkur lenti síðan saman með þessum afleiðingum. Ég var stunginn í lærið með eggvopni, ég veit ekki hvað það var, hnífur eða eitthvað.“

Fjölskyldan var öll heima og börnin horfðu upp á þetta gerast. „Það er mjög erfitt þegar börnin verða vitni að svona. Þá voru fjölmiðlarnir ekki eins og þeir eru í dag. Í dag yrði þetta örugglega forsíðumál en það varð ekki þá. Þetta var alveg ömurleg reynsla.“

„Hvað viltu mér?“

Eftir þetta hefur Bubbi verið laus við mjög alvarlega áreitni. „En það eru samt bara þrjú ár síðan Hrafnhildur opnaði fyrir manni. Hann sagðist vera vinur minn og sagði að hann þyrfti að eiga við mig orð. Hún hleypti honum inn þannig að hann var kominn inn á gafl hjá okkur þegar ég hitti hann. Þetta var bara veikur maður sem taldi sig eiga erindi við mig.“

Bubbi beitti lagni til þess að ná manninum út. „Ég þurfti að lempa hann. Ég fronta fólk sem gerir svona. Ég spyr: „Hvað viltu mér?“ „Hvað ertu að gera hér?“ Hvað ætlastu fyrir?“ „Hvað viltu frá mér?“ Menn svara og þá kemur ýmislegt í ljós.

Ég sýni engan ótta. Ég sýni ekkert annað en fyllstu elsku. Ég garga ekki á manninn og ég ógna honum ekki. Með lagni reyni ég að ná honum út. En ég fer í menn. Þú veist aldrei hvað er í gangi. Er hann með hníf? Er hann með byssu? Hvað ætlar hann sér? Þannig að ég reyni að vera fljótur til þess að komast eins nálægt og hægt er, svo ég geti brugðist við. Þú veist aldrei hvenær þú þarft að taka manninn niður. Það er alls óvíst hvað gerist. Þetta er mjög veikt fólk. Það er enginn heilbrigður maður sem gerir svona.

Þegar ég var að byrja í bransanum voru stundum unglingsstúlkur að elta mig á röndum af því að þær vildu komast í rúmið með mér. Það var allt öðruvísi og viðráðanlegra.“

Alls konar grillur

Á meðan Bubbi bjó í bænum bankaði reglulega einhver upp á. Oftast mjög skrýtið fólk. En eftir að hann flutti í sveitina hefur hann aðeins einu sinni fengið óvæntan og ókunnugan gest. Sá bankaði upp á hjá honum eina nóttina.

„Það hafa eflaust margir í minni stöðu lent í þessu. Svo er önnur tegund af eltihrellum sem þjáist af afbrýðisemi. Þá eru ofsóknirnar af öðrum toga en þegar það er verið að áreita frægt fólk.“

Allir sem hafa ofsótt Bubba eiga það sameiginlegt að hafa fengið einhver skilaboð út úr tónlistinni hans. „Fólk fær alls konar grillur. Það er til dæmis mjög algengt að menn haldi að einhverjar söngkonur elski þá eftir að hafa hlustað á þær syngja. Haldi að það eina sem þeir þurfi að gera sé bara að ná í þær og þá muni þau giftast. Fólk fær alls konar hugmyndir.“

Eins og maðurinn sem taldi sig fá þau skilaboð út úr lögunum að hann þyrfti að drepa Bubba.

Hélt að Bubbi væri djöfullinn

Hann hélt að Bubbi væri djöfullinn. Af því að hann er fæddur 6. júní 1956, 666. „Hann hélt að hann þyrfti bara að opna á mér hausinn til þess að sanna mál sitt. Þegar hann væri búinn að því myndi fólk sjá að hann hefði rétt fyrir sér. Ég væri í raun djöfullinn. Þetta var mjög veikur maður.“

Læknar mannsins fengu fregnir af því að hann væri á leiðinni til Bubba og létu lögregluna vita. Lögreglan brást fljótt við, hringdi í Bubba og lét hann vita að hann mætti alls ekki opna dyrnar heima hjá sér ef það yrði bankað eða dinglað á bjölluna. Fjölskyldan var öll heima en Bubbi lét ekkert uppi við þau.

„Hann var svo stoppaður af þegar hann var á leiðinni til mín til að sanna mál sitt. Sem betur fer fyrir hann og kannski fyrir mig líka varð ekkert úr því. Honum var svo komið fyrir á viðeigandi stofnun þar sem hann fékk hjálp.“

Óttaðist ekkert

Ótrúlegt en satt þá óttaðist Bubbi ekki manninn. „Ég veit ekki hvort þú trúir því eða ekki, en ég óttaðist ekki neitt. Ég tel mig fullfæran um að kljást við svona menn. Sérstaklega ef ég fæ tíma til þess að undirbúa mig, eins og ég fékk þarna. En það treysta sér ekki allir til þess að slást við fólk.

Málið er bara að þú getur ráðið því sjálfur hvort þú verður óttasleginn eða ekki. Ef þú verður óttasleginn getur þú sigrast á óttanum með því að horfast í augu við hann. Þá hörfar óttinn. Ef þú leyfir óttanum að ná tökum á þér stigmagnast hann. Þetta er mjög einfalt, bara eins og störukeppni. Ef þú horfist í augu við óttann lítur hann undan. Alltaf. En það þarf kjark til þess að horfast í augu við óttann og það getur verið erfitt. En það er bara spurning um það hvort þú ætlar að leyfa honum að halda þér í heljargreipum eða ekki. Ég lærði þetta af gömlum aðferðum í hnefaleikunum. Þetta virkar fyrir mig og þetta virkar fyrir alla.

En börnin hafa verið mjög hrædd. Þá hef ég reynt að tala við þau og útskýra fyrir þeim hvað er að gerast. Þau skilja að þetta er veikt fólk. Þau hafa séð suma af þessum einstaklingum þegar þeir hafa komið heim og sjá það á þessu fólki og af hegðun þess að það er mjög veikt.

Og oft er erfitt að koma þessu fólki út úr húsinu. Eins og þessum manni sem mætti alveg brjálaður heim til mín. Hann og sá fyrsti sem ég lenti í voru alvarlegustu tilfellin af því að þeir voru líklegastir til þess að skaða mig.“

Eltur af eltihrelli

Flestir eltihrellarnir fylgdust með Bubba og oftar en einu sinni hefur fólk elt Bubba á röndum. „Þegar ég fór út á morgnana sá ég manneskjuna kannski standa fyrir utan hjá mér eða hinum megin við götuna. Hún lá kannski á glugganum hjá mér. Ég er ekki viss um að þetta fólk hugsi með sér að nú sé það vísvitandi að ógna Bubba. Þetta er veikt fólk sem hefur sennilega aðrar hugmyndir um það hvað það er að gera þarna. Það gerir sér ekki grein fyrir því sem það er að gera. Það veit ekki að hegðun þess er ógnvekjandi. En þetta hafði áhrif á mig. Ég var að vísu alltaf stoned á þessum tíma þannig að ég var kannski paranojaður. Að sama skapi var ég kannski líka slakur.

En það er ekkert skemmtilegt að lenda í þessu. Það hefur enginn áhuga á því að taka á móti svona fólki. Eða fá sendingar með hótunum, snörum, byssukúlum eða litlum líkkistum á dyrapallinn heima hjá sér.“

Áhrif á sálarlífið

„Fyrst og fremst er þetta truflun. Þetta er truflun á daglegu lífi. Truflun á einkalífinu. Truflun á því að getað lifað í friði. Truflun á ró. Þetta er ein tegund ofbeldis. Svipað ofbeldi og blöðin beita fólk stundum. Stundum hafa blöðin tekið menn fyrir og lagt þá í einelti. Þetta er svipuð tilfinning.

Á meðan á þessu stendur verður röskun á daglegu lífi. Þetta hefur líka áhrif á sálarlífið og ég finn fyrir þessu. Þetta er ekki eitthvað sem ég humma bara fram af mér, heldur hefur þetta áhrif á mig. Þegar ég fer út úr húsi á morgnana horfi ég í kringum mig og skima eftir því hvort það sé einhver að fylgjast með mér. Þegar ég er á gangi lít ég við til að athuga hvort einhver sé að fylgjast með mér. Þegar ég kem heim á daginn lít ég til hægri og vinstri áður en ég fer inn. Hægt og rólega verður maður, kannski ekki hræddur, en var um sig og óöruggur.“



Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.