Myndir sem teknar voru í Sjanghæ 2007 sýna að Glitnir bauð einnig upp á átgull í útlandaferðum sínum líkt og Landsbankinn. Ferðin til Sjanghæ var farin í tengslum við sjávarútvegsráðstefnu og sjást Lárus Welding og Magnús Bjarnason meðal annars á myndunum.
Í ferð Glitnis til Sjanghæ í Kína í nóvember árið 2007 var gestunum meðal annars boðið að borða gull. DV hefur undir höndum myndir frá ferðinni til Sjanghæ þar sem gullflögur sjást ofan á trufflusvepp sem hvílir á fiskstykki. Fiskurinn er líkast til þorskur eða ýsa. Með gullinu og sjávarfanginu var borið fram gulleitt soð og kínverskt pak choi-kál.
Ferðin til Kína var farin í tengslum við ráðstefnu um sjávarútveg sem Glitnir hélt í Sjanghæ í nóvember það ár en Glitnir hafði opnað útibú þar í borg árið áður.
Gullát vinsælt í bönkunum
Gullát Glitnis í Kína er annað tilfellið sem þekkt er þar sem íslensk fjármálafyrirtæki buðu upp á gull til átu í útlöndum.
Fyrra þekkta dæmið um slíkt gullát var í Mílanóferð Landsbankans í september þetta sama ár, líkt og greint var frá í tímaritinu Mannlífi síðastliðið sumar. Þá lögðu um 300 gestir Landsbankans risotto með gullflögum í sér til munns og sagði einn þeirra í samtali við tímaritið að gull væri ekki sérstaklega ljúffengt á bragðið. „Það var bara málmbragð af því,“ sagði boðsgesturinn en tímaritið hafði ekki, líkt og DV hefur nú, myndir af gullfæðunni undir höndum.
Nokkuð viðeigandi hefur því þótt að bera gull á borð fyrir gesti bankanna í utanlandsferðum þeirra á árunum fyrir hrunið. Heimildarmenn DV sem borðað hafa gull segja þó allir að það sé alls ekki borið fyrir fólk vegna þess að það sé herramannsmatur. Ástæðan sé einfaldlega sú að það þyki fínt og flott að leggja sér þennan eðalmálm til munns og sýni svo ekki verður um villst að menn eigi mikið undir sér.
Öfugt við það sem flestir gætu haldið hefur gullát tíðkast í margar aldir og notuðu eðalbornir menn í Evrópu það til dæmis til að skreyta risotto, sætindi og ávexti á 16. öld. Sömuleiðis kannast margir matreiðslumenn við slíkt átgull og nota það til skreytingar. Flest fólk hefur hins vegar aldrei heyrt að hægt sé að borða gull og kom það til dæmis flatt upp á gestinn í Mílanóveislu Landsbankans þegar gullið var borið fram fyrir hann.
Starfsmenn Glitnis
Á myndunum sem DV hefur undir höndum sést Lárusi Welding, þáverandi forstjóra Glitnis, oft bregða fyrir ásamt konu sinni Ágústu Margréti Ólafsdóttur. Þar eru einnig myndir af öðrum starfsmönnum Glitnis eins og þeim Magnúsi Bjarnasyni og Hafliða Sævarssyni en Glitnir opnaði útibú í Sjanghæ árið 2006 og vann það meðal annars að málefnum tengdum sjávarútvegi. Útrás bankans snerist fyrst og fremst um að nota þekkingu Íslendinga á sjávarútvegi og jarðvarma til verðmætasköpunar í útlöndum. Þar eru sömuleiðis nokkrar myndir af útibússtjóra Glitnis í Sjanghæ, Jiang Zhu.
Afar líklegt er að Lárus hafi verið staddur í borginni vegna sjávarútvegsráðstefnunnar sem bar yfirskriftina „Hafsjór tækifæra 2007“. Ráðstefna Glitnis í Sjanghæ var sú fimmta sem bankinn hélt á sviði sjávarútvegs. Á ráðstefnunni, sem haldin var fyrir stærstu fyrirtæki heims í vinnslu sjávarafurða, komu saman sérfræðingar í sjávartúvegi hvaðanæva úr heiminum. Ein af niðurstöðum Glitnis, sem kynnt var á ráðstefnunni, var sú að hagstætt gæti verið fyrir Kínverja að einbeita sér enn frekar að framleiðslu á rækjum en einnig var boðið upp á rækjur í ferðinni líkt og myndirnar sem DV hefur undir höndum sýna.
Útrásin og Mídas
Sögur af gulláti Íslendinga í ferðum á vegum íslensku bankanna fyrir hrunið kalla óhjákvæmilega fram í hugann grísku goðsögnina um Mídas konung. Mídas bað guðinn Díonýsos að uppfylla þá ósk sína að allt sem hann snerti yrði að gulli. Díonýsos varð við þessari ósk Mídasar. Fyrst um sinn var hann himinlifandi yfir hæfileikanum en síðar meir áttaði hann sig á því að honum fylgdu ákveðnir erfiðleikar:
Dóttir hans unga varð að gulli þegar Mídas snerti hana og maturinn sem hann ætlaði að borða sömuleiðis. Mídas áttaði sig á því að hann hefði verið blindaður af græðgi þegar hann bað Dínýsos um að uppfylla þessa ósk sína og bað guðinn því um að taka hæfileikann aftur ef hann gæti. Guðinn varð við þessari ósk Mídasar og losnaði hann þar með við þá bölvun sem fylgdi því að breyta öllu í gull við minnstu snertingu.
Sagan af Mídasi er oft tekin sem dæmi um hvernig farið getur fyrir mönnum þegar þeir verða blindaðir af græðgi og má líta svipuðum augum á sögurnar af gulláti Íslendinga á útrásarárunum.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars
