ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Ófrísk með eggi systur sinnar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:46 › 8. mars 2010

Petra Sif Gunnarsdóttir og eiginmaður hennar Þráinn Brjánsson hafa reynt árangurslaust um árabil að eignast barn. Petra hefur fimm sinnum orðið ófrísk en alltaf misst fóstur í upphafi meðgöngu. Eftir átta tæknimeðferðir var ákveðið að reyna með gjafaeggi en systir Petru gaf henni egg úr sér. Petra er nú komin rúmar 20. vikur á leið og er alsæl. Egggjafinn segir eggið einfaldlega gjöf og að þótt barnið sé alfarið Petru og Þráins eigi hún eflaust eftir dekra við það.

„Ég hef það ofsalega fínt og er rétt farin að leyfa mér að trúa því að þetta hafi tekist,“ segir Petra Sif Gunnarsdóttir sem er komin rúmar 20. vikur á leið að sínu fyrsta barni. Petra Sif og eiginmaður hennar, Þráinn Brjánsson, hafa barist við ófrjósemi en nú virðist margra ára baráttu loksins lokið. Þráinn, sem á tvítugan son af fyrra sambandi, og Petra hafa gengist undir fjölda tæknimeðferða, tvær tæknisæðingar og sjö glasa- og smásjárfrjóvganir án árangurs en með gjafaeggi frá systur Petru varð Petra ófrísk í fyrstu tilraun. Hún hafði þó fimm sinnum áður orðið ófrísk, ávallt á náttúrulegan hátt, en alltaf misst á 6.-7. viku og hafði aldrei séð hjartslátt fyrr en núna. Petra segir þau hafa viljað hefja meðferð með gjafaeggi fyrr en að læknarnir hafi ekki talið fullreynt með hennar egg. Þegar í ljós hafi komið að hún væri með litningagalla sem mögulega gæti orsakað ófrjósemina hafi verið ákveðið að nú skyldi reyna á gjafaegg.

Hin fullkomna gjöf
Langur biðlisti er eftir gjafaeggjum á Íslandi auk þess sem kostnaðurinn af tæknimeðferðum er mikill. Þrátt fyrir vísindi, góða lækna og jafnvel gjafaegg er heldur engin fullvissa um að slíkar meðferðir takist. Petra og Þráinn eru ein af þeim heppnu og þurftu ekki að bíða lengi eftir að komast að þar sem þau eru barnlaus og útveguðu sjálf egg. Íris Rún Gunnarsdóttir, egggjafinn og yngri systir Petru, segir sína ákvörðun hafa verið léttvæga. „Ég bauð henni þetta fyrst fyrir fjórum árum en skiljanlega vildi hún reyna allt fyrst,“ segir Íris Rún sem á tvö börn, tíu ára strák og átta ára stúlku. Íris Rún, sem er 28 ára og hætt barneignum, virtist kjörin egggjafi og eftir ítarlegt viðtal hjá félagsráðgjafa Art Medica og læknis- og blóðrannsóknir fékk hún grænt ljós á að gefa systur sinni hina fullkomnu gjöf - von um að draumur þeirra Þráins um barn yrði að veruleika.

18 egg eyðilögðust
Íris þurfti að sprauta sig með hormónum daglega í einn mánuð. Hún segir meðferðina hafa verið lítið mál en hún hafi kviðið eggheimtunni. „Ég hafði einu sinni farið með Petru en það hafði einmitt verið hennar versta skipti og ég horfði upp á hana kveljast. Þess vegna var ég pínu smeyk en þar sem ég hafði fætt tvö börn vissi að ég hlyti að komast í gegnum þetta enda var þetta svo ekkert mál.“
Í eggheimtunni náðust 20 egg úr Írisi en þar sem sýking komst í ræktunina tókst aðeins að bjarga tveimur fósturvísum sem báðir voru settir upp. Petra segir það vissulega hafa verið vonbrigði að svo mörg egg hafi eyðilagst og sér í lagi ef þessi meðferð hefði ekki tekist. „Auðvitað hefði verið ánægjulegt að eiga fósturvísa í frysti og eiga möguleika á fleiri börnum í framtíðinni en það þýðir ekkert að hugsa um það. Ég get ekki verið annað en ánægð,“ segir Petra og systir hennar bætir við að þá verði einfaldlega farið af stað í nýja meðferð.

Dekrað frændsystkin
Íris segir sín börn vita af egggjöfinni og að hún, maðurinn hennar og börnin geri sér fullkomlega grein fyrir að þau hafi ekkert tilkall til barnsins. „Miðað við 20. vikna sónarinn verður þetta lítil frænka,“ segir hún brosandi og bætir við að hún muni ekki eiga neitt í barninu þótt hún hafi lagt til eggið. „Eggið er gjöf og barnið er þeirra,“ bætir hún við en viðurkennir síðan að hún eigi eflaust eftir að halda upp á frænkuna. „Ég á annað frændsystkini sem mér þykir ofsalega vænt um og það sama verður uppi á teningnum í þessu tilfelli þótt þetta barn verði kannski enn meira dekrað,“ segir hún hlæjandi og Petra bætir við: „Ég hugsa heldur aldrei um barnið sem Írisar. Oft dett ég í hugsanir hvort barnið verði líkt mér og get þá gleymt að eggið hafi komið frá henni.“ Svipur er með þeim systrum en ókunnugum blaðamanni finnst þær ekki mjög líkar. Petra segist ekki óttast að barnið líkist Írisi meira en henni sjálfri enda sé ekki leiðum að líkjast. „Annað barnið mitt er alveg eins og pabbi þess en hitt er líkt mági mínum og mágkonu svo það er allur gangur á þessu,“ segir Íris.

Hefur misst 5 fóstur
Eins og vanalega, að tveimur vikum liðnum, eftir uppsetningu tók Petra þungunarpróf heima og vissi því nokkurn veginn hvað þau áttu í vændum þegar niðurstaða blóðprufunnar lá fyrir. Þrátt fyrir að hafa svo oft misst fóstur leyfði hún sér að gleðjast þegar strikin tvö birtust á heimaprófinu. „Þetta er búið að vera mikill tilfinningarússibani. Vissulega gladdist ég þegar ég fékk jákvæða niðurstöðu en ég gat ekki slakað á og notið þess að vera ófrísk og var mjög hrædd fram að 12. viku. Þegar þangað var komið fór ég að bíða eftir 20 vikna sónarnum og gat í rauninni ekki farið á klósettið án áhyggna yfir að nú væri þessu kannski öllu lokið. Það var yndislegt og ólýsanlegt að sjá hjartslátt en ég þorði eiginlega ekki að trúa þessu almennilega fyrr en í 20 vikna sónarnum. Þá fórum við systur báðar að gráta,“ segir Petra og brosir til systur sinnar sem bætir við: „Við sáum litla krílið sparka sem var alveg yndislegt.“

Barnleysi ekki valmöguleiki
Þrátt fyrir erfiðleika segist Petra aldrei hafa misst trúna á að hún yrði einn daginn mamma. „Vissulega væri ég til í að ættleiða fullt af börnum en það er líka langt og erfitt ferli. Við skoðuðum þann kost en gerðum ekkert í þeim málum því ég vissi að þetta myndi takast hjá okkur. Að sama skapi vissi ég að barnleysið væri bara tímabundið. Það væri bara spurning hvenær ég yrði mamma. Við hjónin pössuðum okkur líka á því að missa okkur ekki í neikvæðni eða öfundsýki þótt fólkið í kringum okkur væri að hrúga niður börnum,“ segir hún en bætir við að erfiðast hafi verið þegar vinkonur hennar hafi fundið sig knúnar til að leyna hana sínum þungunum. „Ég skil að þeim hafi þótt erfitt að segja mér frá en það var enn erfiðara að fá fréttirnar frá einhverjum úti í bæ,“ segir Petra og bætir við að henni hafi alltaf tekist að samgleðjast þegar vinkonur hennar urðu ófrískar.

Vill gefa fleiri egg
Íris og Petra segjast vildu óska að fleiri væru til í að gefa egg enda sé þörfin til staðar. Sjálf væri Íris til í að gera þetta aftur og gefa vinkonu færi á að eignast draumabarnið. „Ísland er hins vegar of lítið til að ég væri til í að gefa ókunnugri konu hér á landi en gæti hugsað mér að nýta samstarf Norðurlandanna og gefa egg þangað. Ég á sjálf börn og vil ekki taka þá áhættu að þau geti farið að vera með barni sem kemur úr mínu eggi án þess að vita að þau eru líffræðilega skyld,“ segir Íris. Aðspurð segist Petra ætla að útskýra upprunann fyrir barninu þegar það hafi þroska og aldur til. „Þá setjumst við Íris örugglega bara báðar niður með henni, eða honum, og útskýrum málið,“ segir hún og Íris bætir við: „Það eru til margar bækur um þetta efni og Petra hefur nægan tíma til að ákveða hvernig hún vilji standa að þessu.“

Myndi ganga með barnið
Umræða um staðgöngumæðrun hefur sprottið upp í samfélaginu í kjölfar nýs félags sem hefur verið stofnað. Aðspurðar segjast systurnar báðar vilja sjá staðgöngumæðrun lögleidda á Íslandi. „Mér finnst þessi umræða sem er farin af stað ofsalega jákvæð og vona að þetta verði gert löglegt. En hins vegar þurfa að vera mjög skýrar og góðar reglur í kringum þetta. Maður hefur heyrt rosalegar sögur af pörum sem eru að fara til útlanda til að láta konur ganga með barn fyrir sig sem er síðan bara plat. Þá er búið að blóðmjólka alla peninga frá þeim og gefa þeim vonir sem síðan reynist enginn fótur fyrir,“ segir Petra. Íris bætir við að hún hafi boðist til að ganga með barnið fyrir Petru ef þess þyrfti. „Þá vissi ég ekki að þetta væri ólöglegt. Ég veit hvernig er að vera mamma og hefði gengið með barnið fyrir systur mína ef þess hefði þurft og ég veit líka að hún hefði gert það sama fyrir mig. Samt óskaði ég þess alltaf að hún gæti gengið með barnið sitt því á meðgöngunni verða til svo sterk tengsl.“

Fagnar óléttueinkennum
Petra og Þráinn sögðu engum frá fyrstu meðferðinni en eftir fyrstu neikvæðu niðurstöðuna ákváðu þau að segja frá og fá stuðning frá sínum nánustu. Að sama skapi vita flestir í kringum þau að þau hafi fengið egg hjá Írisi. Íris segir flesta jákvæða í garð gjafarinnar en að sumir hafi áhyggjur af því að hún verði of tengd barninu. „Ég verð alltaf jafnhissa þegar ég fæ að heyra það því ég óttast það engan veginn. Þetta er þeirra barn og mitt frændsystkini.“
Petra fékk smávægilega morgunógleði fyrstu þrjá mánuðina en segist ekki geta kvartað. „Ég kastaði nokkrum sinnum upp og var mjög bumbult suma dagana en mér var nokk sama og tók öllum óléttueinkennum fegins hendi. Ég hef því verið hress fyrir utan smá bakverk og hef því minnkað við mig vinnu. Sögunnar vegna er þetta áhættumeðganga og læknarnir fylgjast vel með auk þess sem ég get komið í sónar þegar ég vil til að róa mig þegar stressið lætur á sér kræla. Nú er þetta allt að koma og ég er farin að finna fyrir litlum spörkum,“ segir hún brosandi en Petra er sett 22. júlí.

Eitt barn kraftaverk
„Þrátt fyrir allt hefði ég ekki viljað missa af þessari lífsreynslu því ég hef lært svo óendanlega mikið. Að eignast barn er langt frá því að vera sjálfgefið og þótt ég hafi fengið að heyra misgáfuleg ráð í gegnum tíðina er slíkt löngu hætt að hafa áhrif á mig. Vissulega pirraði það mig hér áður fyrr þegar ég var til dæmis spurð af hverju ég fengi mér ekki bara hund en í dag veit ég að fólk vill vel og segir slíka hluti í hugsunarleysi. Ég ætlaði alltaf að eignast sex börn en verð óendanlega þakklát að eignast eitt. Eitt barn er vissulega kraftaverk.“

indiana@dv.is



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.