Í ársbyrjun 2008 hafði Milestone á prjónunum að fá aðstoð Landsbankans við að yfirtaka 40 prósenta hlut Baugs í FL Group, stærsta hluthafa Glitnis og Tryggingamiðstöðvarinnar. Yfirtakan var kölluð Project FeelGood og var kynnt þannig að slæm fjárhagsstaða Baugs kallaði eftir tafarlausum aðgerðum vegna þeirra slæmu áhrifa sem skuldsetning Baugs hefði á Landsbankann og íslenska fjármálakerfið í heild sinni.
Þetta kemur fram í trúnaðarskjali frá Milestone sem DV hefur undir höndum. Þessi væntanlega yfirtaka Milestone á FL Group var kölluð Project FeelGood, eða „Vellíðunaraðgerðin“. Afar líklegt er að Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, hafi skrifað minnisblaðið.
Minnisblaðið gekk því út á að stilla málum upp þannig að Milestone-samstæðan stæði afar vel á meðan Baugur stæði illa og því ætti Landsbankinn að sjá hagsmuni sína í því að Milestone ætti frekar ráðandi hlut í FL Group.
DV hefur fengið það staðfest innan úr Landsbankanum að Guðmundur og Karl Wernersson, aðalaeigandi Milestone, hafi kynnt hugmyndirnar úr minnisblaðinu fyrir starfsmönnum bankans á fundum. Hugmyndirnar munu þó ekki hafa verið kynntar fyrir stærstu eigendum hans, Björgólfi Guðmundssyni og syni hans Björgólfi Thor, þar sem starfsmönnum bankans mun ekki hafa litist mjög vel á þær eða tekið þær alvarlega. Einnig spilaði inn í að Milestone var ekki í miklum viðskiptum við Landsbankann og því þekktu stjórnendur hans Milestone ekki vel.
DV hafði samband við Guðmund Ólason fyrir helgi til að ræða við hann um hugmyndirnar í minnisblaðinu. Guðmundur vildi hins vegar ekki tjá sig um þær.
Landsbankinn sagður í hættu vegna Baugs
Í minnisblaðinu segir að slæm staða FL Group og Baugs kalli eftir því að lánardrottnar félaganna grípi til aðgerða gegn þeim - Landsbankinn var helsti lánveitandi Baugs og er stærsti kröfuhafi félagsins sem skilur eftir sig 300 milljarða skuldahala. „Markaðsaðstæður á íslenska hlutabréfamarkaðnum kalla eftir tafarlausum aðgerðum varðandi FL Group. Ástæðan er sú að félagið er ráðandi aðili í Glitni og Tryggingamiðstöðinni og hefur lausafjárstaða félagsins versnað til muna. Þar sem FL er stærsti einstaki hluthafi Glitnis banka með 31 prósent eignarhlut hefur skuldsetning hluthafa þess neikvæð áhrif á bankann og dregur úr stöðugleikanum í íslenska bankakerfinu í heild sinni. Lánardrottnar Baugs hljóta að vera að leita leiða til að koma í veg fyrir að slæmar afleiðingar hljótist af þessu og til að takmarka þá áhættu sem felst í að eiga útistandandi fjármuni hjá skuldurum sem nú þegar eiga lítið lausafé og þá hættu sem steðjar að bankanum vegna skuldsetningar Baugs og tengdra félaga,“ segir í fyrstu efnisgrein minnisblaðsins.
Þessi nálgun í minnisblaðinu er nokkuð sérstök þar sem náin tengsl Landsbankans og Baugs voru flestum kunn. Afar ólíklegt er því að Landsbankinn hefði ákveðið að snúa bakinu við Baugi til taka upp náið samstarf við Milestone.
Einnig var litið svo á í minnisblaðinu að dregið yrði úr kerfisáhættu í fjármálakerfinu í heild sinni með því að útiloka Baug frá því að eiga ráðandi hlut í Fl Group. „... það er vitað að Fjármálaeftirlitið hefur verið að athuga stöðu stærstu hluthafa Glitnis og hefur látið í ljósi áhyggjur sínar af stöðu þeirra og bankans í heild sinni. Þess vegna er líklegt að Fjármálaeftirlitið og löggjafinn myndi vera jákvæður fyrir endurskipulagningu FL og mögulegri sameiningu íslenskra banka í kjölfarið“.
Því voru það bæði einkahagsmunir og almannahagsmunir sem Milestone taldi styðja þær yfirtökutillögur sem félagið stakk upp á við Landsbankann.
Vildu láta bankann leysa til sín FL-bréfin
Út af þeirri áhættu sem Milestone taldi að væri fólgin í því fyrir Landsbankann að eiga svo mikilla hagsmuni að gæta í Baugi, sem og vegna þeirrar kerfisáhættu sem félagið taldi að þetta hefði, var stungið upp á því í minnisblaðinu að Landsbankinn myndi leysa til sín bréf félagsins í FL Group.
„Landsbankinn er í góðri stöðu gagnvart Baugi og getur komist yfir hlutabréf þess í FL. Gert er ráð fyrir því að Landsbanki Íslands geti komist yfir bréf Baugs í FL vegna slæmrar eiginfjárstöðu félagsins og mikillar skuldsetningar þess. Markaðsvirði þessa 40 prósenta hlutar í FL er í kringum 56 milljarðar íslenskra króna,“ segir í minnisblaðinu.
Að mati þeirra Milestone-manna átti Landsbankinn í kjölfarið að selja bréfin í FL Group til Milestone. Kaupverð bréfanna ætlaði Milestone að greiða með hlutabréfum í Moderna Finance, sænska félaginu sem helstu eignir Milestone höfðu verið færðar til í lok árs 2007, sem voru 30 milljarða króna virði auk þess sem Landsbankinn átti að lána Milestone 26 milljarða fyrir eftirstöðvum kaupverðsins. „Milestone, sem er skuldlaust félag sem heldur utan um allar eignir sínar í gegnum sænska dótturfélag sitt Moderna Finance og er með eigið fé upp á 100 milljarða, er reiðubúið og fært að kaupa 40 prósent hlut í FL af Landsbankanum,“ segir í minnisblaðinu.
Bréf Þáttar til FL Group
Í kjölfar sölunnar á FL-bréfunum til Milestone hefði Milestone ráðið yfir 40 prósenta hlut Baugs í félaginu, og í reynd ráiðið yfir 31 prósents hlut FL Group í Glitni og verið stærsti hluthafinn í Landic Property. Auk þess hefði Milestone ráðið yfir Tryggingamiðstöðinni í krafti stöðu sinnar sem stærsti hluthafi FL Group.
Eftir þetta átti að endurskipuleggja FL Group, samkvæmt minnisblaðinu, og meðal annars að selja 7 prósenta Glitnishlut dótturfélags Milestone, Þáttar International, og Einars og Benedikts Sveinssona til FL Group. Kaupverðið átti að vera 20 milljarðar króna. Eftir þetta hefði FL Group haldið utan um 38 prósenta hlut í Glitni.
Næsta skref í fléttunni var að Milestone ætlaði sér að eignast allt hlutafé í FL Group í yfirtöku með því að nota Landsbankann til að stilla hinum hluthöfum FL Group upp við vegg. „Ef Landsbankinn styður yfirtökutilboðið er mjög líklegt að allir aðrir hluthafarnir muni samþykkja það; annars eiga þeir á hættu að vera algerlega innikróaðir í FL,“ segir í minnisblaðinu.
Eftir alla þessa gerninga átti Landsbankinn að standa uppi með 12,5 prósenta hlut í Moderna Finance-samstæðunni og átti eigið fé félagsins að vera 240 milljarðar króna og heildareignir þess um 580 milljarðar. Viðskiptin áttu því að þjóna hagsmunum Landsbankans og Milestone. Gulrótin í viðskiptunum var Moderna, sem Landsbankinn átti að eignast hlut í með þeim, en heimildir DV innan úr Landsbankanum herma að starfsmönnum bankans hafi ekki litist neitt allt of vel á Moderna og lítið vitað um félagið. Þetta var önnur ástæða þess af hverju þeir tóku dræmt í hugmyndirnar.
Töluðu um sameiningu bankanna
En hugmyndir þeirra Milestone-manna náðu lengra en þetta. Í lok minnisblaðsins kynntu þeir þá hugmynd sína að sameina Landsbankann og Glitni. Ef af þessari sameiningu hefði orðið hefði nafnið Landsbanki verið notað fyrir hinn nýja sameinaða banka. Eignarhaldsfélag þeirra Björgólfsfeðga, Samson, átti að vera stærsti hluthafi bankans en Moderna sá næststærsti. „MFG [Innskot blaðamanns: Moderna Finance Group] og Milestone eru tilbúin að skuldbinda sig til viðræðna um að sameina Landsbankann og GLB [Innskot blaðamanns: Glitnir banki] undir nafni hins fyrrnefnda með MFG sem næststærsta hluthafann á eftir stærsta hluthafa Landsbankans [Innskot blaðamanns: Samson]“, segir í minnisblaðinu en þar segir einnig að Moderna og Milestone séu sannfærð um að samruni þessara tveggja fjármálafyrirtækja myndi verða samþykktur af íslenskum stjórnvöldum. Í kjölfarið væri svo hægt að ræða um samstarf eða sameiningu á milli Tryggingamiðstöðvarinnar og Sjóvár en Moderna hefði þá verið orðið eigandi þeirra beggja eftir yfirtökuna á FL Group.
Þessar hugmyndir munu hafa verið kynntar fyrir Sigurjóni Árnasyn, bankastjóra Landsbankans, en einn af heimildarmönnum DV segir að hann hafi ekki haft áhuga á henni. „Sigurjón hefði ekki veðjað á Milestone í staðinn fyrir Baug,“ segir heimildarmaður DV en Baugur hafði, öfugt við Milestone, verið einn stærsti viðskiptavinur bankans um árabil. Milestone treysti hins vegar mest á lánafyrirgreiðslu frá Glitni og nær eingöngu þegar þarna var komið sögu þar sem öll erlend fjármálafyrirtæki höfðu tekið fyrir lánveitingar til Milestone út af ástandinu á íslenska fjármálamarkaðnum. Hugmyndirnar um FL-yfirtökuna urðu því að engu inni í Landsbankanum.
Milestone sjálft í bullandi erfiðleikum
Þó að forsvarsmenn Milestone og Moderna hafi teiknað dæmið upp eins og félög þeirra stæðu vel um þetta leyti, í ársbyrjun 2008, öfugt við stöðu Baugs sem væri afar slæm, var raunin ekki sú. Hugsanlegt er að matið á stöðu Baugs í minnisblaðinu hafi verið nokkuð rétt en svo er ekki um stöðu Milestone. Sannleikurinn er sá að Milestone var sjálft komið í bullandi vandræði í upphafi árs 2008 og átti í erfiðleikum með að endurfjármagna lán sín og hafði félagið leitað til tuga erlendra fjármálafyrirtækja eftir lánum á seinni hluta árs 2007. Ekkert þeirra vildi hins vegar fjármagna Milestone.
Um þetta er rætt í skýrslu endurskoðendafyrirtækisins Ernst & Young sem unnin var fyrir þrotabú Milestone og kynnt var á kröfuhafafundi félagsins í byrjun síðustu viku. Þar kemur fram að Milestone hafi í raun verið orðið ógjaldfært félag strax í árslok 2007 og að forsvarsmenn þess hafi með réttu átt að gefa félagið upp til gjaldþrotaskipta þar sem það hefði ekki getað staðið við skuldbindingar sínar gagnvart lánardrottnum sínum. Afleiðing þessara lausafjárvandræða varð sú, samkvæmt skýrslunni, að eftir fyrstu 3 mánuði ársins 2008 vantaði félagið rúmlega 1,1 milljarð króna til að standa við greiðslur sínar.
Skoða verður öll viðskipti Milestone á árinu 2008 í ljósi þessara lausafjárerfiðleika enda má túlka skýrslu Ernst & Young sem svo að félagið hafi stöðugt verið að kaupa sér frekari gálgafrest á árinu 2008: „Niðurstaða okkar er að Milestone ehf. hafi verið komið í verulega fjárhagsleg vandræði á haustmánuðum ársins 2007,“ segir í skýrslu Ernst og Young.
Örþrifaráð
Sömu sögu er að segja um þessar yfirtökuhugmyndir Milestone á FL Group. Líklegt er að forsvarsmenn félagsins hafi eygt möguleika á því að félagið hefði getað fjármagnað sig betur ef af FL Group-yfirtökunni hefði orðið með aðstoð Landsbankans. Þannig hefði félagið verið orðið stærra og hefði í raun ráðið Glitni. Sameiningin við Landsbankann hefði svo enn frekar aukið möguleikana á aðgangi að frekara lánsfé í banka sem væntanlega hefði orðið sá stærsti í Íslandssögunni.
Milestone-menn sögðu starfsmönnum Landsbankans því alls ekki alla söguna um stöðu félagsins á þessum tíma. Einungis um mánuði eftir að yfirtökuhugmyndirnar voru kynntar fyrir Landsbankamönnum var gengið frá Vafningsviðskiptunum þar sem Glitnir skar Milestone úr snörunni með lánveitingu sem síðar rann til Morgan Stanley. Ef Glitnir hefði ekki hlaupið undir bagga með Milestone hefði félagið misst hlutabréf dótturfélags síns í Glitni í veðkalli Morgan Stanley.
Veruleikinn var því aðeins annar en Milestone teiknaði upp enda sést á minnisblaðinu að um er að ræða hugmyndir sem líkjast frekar örþrifaráðum en raunhæfum viðskiptahugmyndum. Fokið var í flest skjól fyrir Milestone og því leitaði félagið til banka sem það hafði átt í litlum viðskiptum við og bað stjórnendur hans um að stinga einn stærsta viðskiptavin bankans, Baug, í bakið.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Ráðgátan um hvarf Matthíasar
Þau sleppa með arðinn
Í Karíbahafinu með Árna Johnsen
Konan varð brjáluð
Játning Gunnars Rúnars
